Þjónustuaðili
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Stjórnandi á svið Mannvirkja og markaðseftirlits
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026
Stjórnandi á svið Mannvirkja og markaðseftirlits
Vilt þú starfa sem stjórnandi á nútímalegum vinnustað sem ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum?
Við óskum eftir metnaðarfullum stjórnanda á svið Mannvirkja og markaðseftirlits til að leiða teymi markaðseftirlits.
Hlutverk teymisins er að hafa virkt eftirlit með ýmsum vöruflokkum á markaði með tilliti til lögbundinna krafna, þar með talið öryggis, visthönnun orkutengdra vara og orkumerkinga. Teymið sinnir einnig eftirliti með löggildingum voga og loks fellur rekstur Vöruvaktarinnar (voruvaktin.is) undir teymið. Markmið teymisins er að tryggja neytendavernd þegar kemur að vörum á markaði.
Óskað er eftir einstaklingi sem þrífst vel í árangursdrifnu umhverfi þar sem lögð er áhersla á skýr samskipti, skilvirka stjórnsýslu og góða þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur stjórnandi teymis
Ábyrgð á verkefnum teymis og árangursmælikvörðum
Stuðla að góðum samskiptum og samstarfi innan HMS og við hagaðila
Sinna fræðslu- og kynningarstarfi um markaðseftirlit
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði lögfræði
Árangursrík og farsæl reynsla af stjórnun
Þekking og reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu er kostur
Þekking og/eða reynsla af markaðseftirliti er kostur
Leiðtogahæfileikar og færni til að stýra verkefnum
Góð greiningarfærni og hæfni til að setja sig inn í flókin sérfræðileg verkefni
Mikið frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð samskipta- og samstarfshæfni ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.
HMS hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.
Sótt erum starfið á heimasíðu HMS Vinnustaðurinn | Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þórunn Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri, Mannvirki og markaðseftirlit
Tölvupóstur: thorunn.sigurdardottir@hms.is
Þjónustuaðili
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Stjórnandi á svið Mannvirkja og markaðseftirlits
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026