Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skólinn við Ármúla

Upplýsingar um starf

Starf

Fjölbrautaskólinn við Ármúla auglýsir eftir kennara í stærðfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.04.2026

Umsóknarfrestur

17.04.2026

Fjölbrautaskólinn við Ármúla auglýsir eftir kennara í stærðfræði

Laus er til umsóknar staða framhaldsskólakennara í stærðfræði við Fjölbrautaskólann við Ármúla, frá og með hausti 2026. Um er að ræða afleysingu til eins árs með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennari í stærðfræði kennir og undirbýr kennslu, hefur faglegt samstarf og metur nám í kennslugrein sinni samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár, gerir námsáætlun, viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf, situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið að lágmarki 180 ECTS einingum í stærðfræði. Óskað er eftir því að umsækjendur hafi góða þekkingu og reynslu af notkun upplýsingatækni í starfi, hæfni til að vinna sjálfstætt, hafi mikla samskipta- og skipulagshæfni og áhuga á kennslu og störfum með ungu fólki. Reynsla af kennslu í framhaldsskóla er kostur svo og ef umsækjandi gæti einnig kennt almennar raungreinar. Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi til kennsluréttinda og öðlast leyfi til að nota starfsheitið kennari.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og meðmælendur. Kynningarbréf er æskilegt.

Vakin er athygli umsækjenda á að áður en að ráðningu kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Á heimasíðunni http://www.fa.is er að finna helstu upplýsingar um skólann og starfsemi hans

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Magnús Ingvason

skólameistari

Tölvupóstur: mi@fa.is

Sími: 8627610

Kristrún Birgisdóttir

aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: kb@fa.is

Sími: 8482255

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skólinn við Ármúla

Upplýsingar um starf

Starf

Fjölbrautaskólinn við Ármúla auglýsir eftir kennara í stærðfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.04.2026

Umsóknarfrestur

17.04.2026