Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Framhaldsskólakennari í ensku
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Framhaldsskólakennari í ensku
Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar eftir að ráða framhaldsskólakennara í ensku. Um fullt starf er að ræða. Ráðningartími er frá upphafsdegi ráðningar en ráðið er í stöðuna frá 1.08.26.
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðkomandi sinnir kennslu en í því felst að kenna, undirbúa kennslu, og meta nám í kennslugrein sinni samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár. Gerir námsáætlun, viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf, situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.
Hæfniskröfur
Umsækjandi uppfyllir kröfur um menntun og hæfni samkvæmt lögum nr. 95/2019.
Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi og menntun í viðkomandi fagi.
Kennslureynsla á framhaldsskólastigi er æskileg.
Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.
Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkissjóðs og KÍ skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum. Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.
Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðlaug Málfríður Pálsdóttir
aðstoðarskólameistari
Tölvupóstur: gudlaug.palsdottir@fss.is
Sími: 421 3100
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Framhaldsskólakennari í ensku
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026