
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir við Líknarmiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-40%
Starf skráð
16.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Sérfræðilæknir við Líknarmiðstöð
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis við Líknarmiðstöð Landspítala í Kópavogi. Um er að ræða rannsóknar- og þróunarstarf innan líknarþjónustunnar sem felur í sér eflingu rannsókna og gæðastarfs í líknarlækningum, þróun og fræðslu á sviði líknarlækninga, sem og uppbyggingu gagnagrunns um líknar- og lífslokameðferð.
Starfshlutfall er 40% og er upphaf starfa 1. júní 2026 eða eftir samkomulagi.
Líknarmiðstöð heyrir undir krabbameinsþjónustu Landspítala. Um er að ræða þekkingarsetur þar sem helstu verkefni snúa að faglegri framþróun líknarmeðferðar, fræðslu og þjálfun, framþróun fagsins, gæðastarfi og rannsóknum. Náið samstarf er við klínískar einingar líknarþjónustunnar á Landspítala; Líknardeild í Kópavogi, ráðgefandi líknarteymi Landspítala og sérhæfða líknarheimaþjónustu HERU.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna að uppbyggingu gagnagrunns um líknar- og lífslokameðferð
Umsjón og ráðgjöf tengt rannsóknum innan líknarlækninga
Þátttaka í kennslu og fræðslu
Þróun og gæðastarf innan líknarlækninga/líknarmeðferðar
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi
Reynsla á sviði líknarlækninga
Reynsla í kennslu og vísindavinnu
Þekking á uppbyggingu læknisfræðilegra gagnagrunna æskileg
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Fagleg vinnubrögð
Íslenskukunnátta æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, vísindi, rannsóknir
Staðsetning: Líknardeild, 200 Kópavogi
Starfshlutfall er -40%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir við Líknarmiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-40%
Starf skráð
16.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026