
Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Enskukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Enskukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð
Menntaskólinn við Hamrahlíð óskar eftir að ráða enskukennara skólaárið 2026 - 2027. Menntaskólinn við Hamrahlíð er framhaldsskóli sem byggir á áfangakerfi. Boðið er upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum og alþjóðlegri námsbraut, IB-braut, auk náms á fjölnámsbraut. Rúmlega 100 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru rúmlega 1000.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í enskuáföngum skólans. Kennarinn ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í viðkomandi námsgrein og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari (vera með leyfisbréf sem kennari) og hafa háskólapróf í ensku.
Aðrar hæfniskröfur
Uppfylla kröfur um menntun og hæfni samkvæmt lögum nr. 95/2019
Búa yfir faglegum metnaði, frumkvæði, öguðum vinnubrögðum og jákvæðu hugarfari.
Búa yfir samskiptafærni og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt.
Mjög góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni, m.a. kunnátta og þekking á kennslukerfinu Innu og Office365.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, starfatorg.is. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn ásamt þeim gögnum sem umsækjendur telja skipta máli í ráðningarferlinu, t.d. prófskírteinum og leyfisbréfi. Innsend gögn verða lögð til grundvallar ráðningu í starfið. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: rektor@mh.is

Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Enskukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026