Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Landvörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.04.2026

Umsóknarfrestur

21.04.2026

Landvörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og í Snæfellsstofu. Landverðir taka þátt í fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun og varðveislu náttúrunnar. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, leiðbeina og fræða gesti um náttúru landsins, fylgjast með ástandi umhverfisins. Landverðir gegna lykilhlutverki í að fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana.

Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Jökulsá á Fjöllum að mörkum friðlandsins Lónsöræfum. Landvarsla er bæði á hálendi í Krepputungu og Snæfelli og á láglendi í Snæfellsstofu á Skriðuklaustri.

Um ótímabundið starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samskipti við gesti þar sem lögð er áhersla á miðlun upplýsinga og fræðslu.

  • Umsjón og eftirlit með starfssvæðum ásamt vöktun náttúrufars til að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu svæðanna.

  • Viðhald innviða, s.s. merking gönguleiða, umhirða svæða og ræsting.

  • Afgreiðslu og upplýsingagjöf í gestastofu.

  • Smærri framkvæmdir og önnur tilfallandi verkefni.

  • Eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum.

Hæfniskröfur

  • Landvarðaréttindi, gild ökuréttindi.

  • Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að miðla upplýsingum á áhrifaríkan hátt.

  • Sterk þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun við fjölbreyttar áskoranir.

  • Umhverfisvitund, verkkunnátta og áreiðanleiki.

  • Góð skipulagsfærni og hæfni til að starfa undir álagi.

  • Starfsreynsla á friðlýstum svæðum eða önnur reynsla sem tengist verkefnum landvarða, t.d. náttúrutúlkun er kostur.

  • Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur.

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni.

Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.

Um Náttúruverndarstofnun

Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 talsins um allt land.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ragna Fanney Jóhannsdóttir

Þjóðgarðsvörður/Svæðisstjóri

Tölvupóstur: ragna.f.johannsdottir@nattura.is

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Landvörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.04.2026

Umsóknarfrestur

21.04.2026