
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir - Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-60%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026
Ljósmóðir - Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar eftir að ráða áhugasama og drífandi ljósmóður í 40-60% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Ljósmóðir mun starfa í þverfaglegu teymi með annarri ljósmóður, læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið ljósmæðra er við meðgönguvernd, ungbarnavernd og leghálsskimanir
MeðgönguverndMarkmið meðgönguvernd er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu. Meðgönguvernd er höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á.
Ung- og smábarnaverndMarkmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.
LeghálsskimanirHeilsugæslunni hefur verið falin framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi og annast ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sýnatökur vegna skimunarinnar.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsleyfi sem ljósmóðir
Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
Reynsla af leghálsskimunum kostur
Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni framkvæmdarstjóra mannauðssvið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 40-60%
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir - Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-60%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026