Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri á brotaendurhæfingardeild - Tímabundin staða

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.04.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026

Hjúkrunardeildarstjóri á brotaendurhæfingardeild - Tímabundin staða

Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi á brotaendurhæfingardeild L1 á Landakoti. Staðan er tímabundin til eins árs vegna afleysinga. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing og aðra stjórnendur og samstarfsfólk.

Brotaendurhæfingardeild L1 er staðsett á Landakoti í hjarta Reykjavíkur, í fallegu og friðsælu umhverfi. Þar dvelja sjúklingar sem þurfa styttri endurhæfingu eftir brot, með það að markmiði að endurheimta færni, hreyfigetu og sjálfstæði og stuðla að öruggri útskrift heim. Unnið er í þverfaglegu teymi þar sem lögð er áhersla á markvissa endurhæfingu. Lögð er áhersla á að efla gæðamenningu á deildinni, styðja vel við aðstandendur og skapa sterkt og styðjandi starfsumhverfi þar sem fagmennska og þróun starfsfólks eru í forgrunni.

Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur endurhæfingarþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni

  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni

  • Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar

  • Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækna og forstöðufólk endurhæfingarþjónustu

  • Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt

  • Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan öldrunar- og endurhæfingarþjónustu

  • Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan öldrunar- og endurhæfingarþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli

  • Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur

  • Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur

  • Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur

  • Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót

  • Hæfni til að leiða teymi

  • Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál

  • Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, deildarstjóri, hjúkrunarfræðingur, endurhæfing, stjórnun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Túngata, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Manda Jónsdóttir

Tölvupóstur: margrmj@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri á brotaendurhæfingardeild - Tímabundin staða

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.04.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026