
Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Verkefnastjóri við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
Leitum að verkefnastjóra sem vill taka virkan þátt í þróun, undirbúningi og framkvæmd náms á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið (HVR). Starfið sameinar verkefnastjórnun, upplýsingagjöf, ráðgjöf og þjónustu og krefst nákvæmni, samskiptahæfni og fagmennsku. Viðkomandi mun vinna náið með skrifstofustjóra, deildarforsetum og öðru starfsfólki í öflugu, þverfaglegu umhverfi.
Um fullt starf er að ræða. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri HVR og er starfsstöðin á Akureyri.
Starfið felst í miklum samskiptum, samvinnu og þjónustu við stjórnendur, starfsfólk og nemendur sviðsins. Á sviðsskrifstofunni starfa fimm verkefnastjórar en um níutíu starfsmenn vinna við fræðasviðið í akademískum störfum og stoðþjónustu. HVR býður upp á grunn- og framhaldsnám í fjórum deildum, Auðlindadeild, Hjúkrunarfræðideild, Iðjuþjálfunarfræðideild og Viðskiptadeild og eru nemendur um 1400 þetta skólaárið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sinnir verkefnastjórnun, skipulagi og upplýsingagjöf fyrir sviðið til starfsfólks, nemenda og miðlægrar stjórnsýslu háskólans
Samræmir og bætir verkefni og verkferla þvert á deildir, fræðasvið og stoðeiningar
Heldur utan um skráningu og úrvinnslu upplýsinga um nám, skipulag náms, kennslu og starfsmannahald
Vinnur að framkvæmd og tilhögun náms samkvæmt náms-og kennsluskrá deilda og brauta í samstarfi við stjórnendur og annað starfsfólk sviðsskrifstofu
Vinnur að úrlausn álitamála er varða nám og kennslu í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk á sviðsskrifstofu
Undirbýr fundi og annast fundarritun í samstarfi við stjórnendur fræðasviðsins
Hæfniskröfur
Meistarapróf sem nýtist í starfi
Reynsla af skrifstofustörfum og þekking af verkefnastjórnun
Reynsla af þróun og vinnu með gæða- og verkferla er kostur
Þekking á háskólaumhverfinu og opinberri stjórnsýslu er kostur
Góð almenn tölvukunnátta og hæfileiki til að nýta sér þekkingu
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Góð samskiptafærni, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Umsókn skal fylgja:
Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda
Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026