Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í fæðingarteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

14.04.2026

Sérfræðilæknir í fæðingarteymi

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í fæðingarlækningum í fæðingarteymi kvenna- og barnaþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Í fæðingarteyminu starfar öflugur hópur sérfræðilækna í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á þverfaglega samvinnu til að tryggja öryggi mæðra og barna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf sérfræðilæknis í fæðingarteymi Landspítala felur í sér vinnu við fæðingarþjónustu, þ.m.t. göngudeild vegna áhættumæðraverndar og vinna við fæðingar. Þátttaka er í vöktum og bakvöktum fæðinga- og kvenlækninga. Þátttaka í kennslu og vísindavinnu sem og önnur sérverkefni, umsjónarstörf eða eftirlitsverkefni eru í samráði við yfirlækni.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum

  • Reynsla af störfum við áhættumæðravernd

  • Reynsla af störfum við fósturgreiningar æskileg

  • Leiðtogahæfileikar

  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni og jákvætt viðmót

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Reynsla af kennslu og vísindastörfum

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir,

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Hjartardóttir

Tölvupóstur: huldahja@landspitali.is

Sími: 543-3302

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í fæðingarteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

14.04.2026