Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúi í hópi ritara LRH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026

Þjónustufulltrúi í hópi ritara LRH

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og metnaðarfullum starfsmanni í stöðu þjónustufulltrúa í ritarahóp. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf í þjónustudeild sem heyrir undir stjórnsýslu- og þjónustusvið embættisins.

Þjónustudeild sinnir stoð- og þjónustuhlutverkum fyrir bæði almenning og aðra hluta lögreglu. Deildin starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Deildin hefur nýlega flutt í nýtt sameinað rými sem hefur skapað líflegt vinnuumhverfi þar sem teymisandi er í forgrunni. Jafnframt er verið að innleiða nýtt þjónustukerfi og kortleggja þjónustuferla með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 450 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við rannsóknardeildir og ákærusvið lögreglu. Upplýsingamiðlun og ráðgjöf, símsvörun, móttaka erinda, skráningar og miðlun upplýsinga innan og utan embættisins. Ritun, ljósritun, flokkun, afhending og frágangur mála.

  • Skráning og flokkun mála í þjónustukerfi og önnur kerfi embættisins

  • Upplýsingamiðlun og leiðbeiningar til borgara um stöðu mála og næstu skref

  • Eftirfylgni við erindi og samskipti við kærendur til að tryggja góða þjónustuupplifun

  • Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum tengdum þjónustuferlum og stafrænni þróun deildarinnar

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af þjónustu-, móttöku- eða sambærilegu starfi er kostur

  • Reynsla af umbótavinnu er kostur.

  • Reynsla af beiðna- eða þjónustukerfum (s.s. Zendesk, Salesforce eða sambærilegum) er kostur

  • Þekking á starfsemi lögreglu og/eða opinberri stjórnsýslu er kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund

  • Mikið frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol

  • Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð

  • Góð almenn tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Við ráðningar hjá LRH er tekin mið af jafnréttisáætlun embættisins.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að sannreyna þetta er lögreglu heimil að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrá lögreglu sbr. 28. gr.a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þórir Ingvarsson

Tölvupóstur: thorir.ingvarsson@lrh.is

Sími: 4441000

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúi í hópi ritara LRH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026