Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisgagnafræðingur á fæðingarvakt

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026

Heilbrigðisgagnafræðingur á fæðingarvakt

Við óskum eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing til starfa á fæðingarvakt á kvenna og barnaþjónustu Landspítala, Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni og mikil samskipti. Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu virka daga og ráðið er í starfið frá 1. maí 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Á deildinni starfa um 100 einstaklingar og er fagmennska og teymisvinna höfð að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og skráning á fæðingartilkynningum

  • Innskriftir og útskriftir skjólstæðinga í Sögukerfið

  • Panta kennitölur og gefa fæðinganúmer

  • Móttaka kvenna

  • Aðstoða við símsvörun

  • Yfirferð á tímaskráningum starfsmanna

  • Tengiliður við birgðarstöð

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur

  • Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta

  • Góð tölvukunnátta er skilyrði og þekking á Sögukerfi Landspítala er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Heilbrigðisgagnafræðingur, skrifstofustörf, móttaka

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir

Tölvupóstur: gudlerla@landspitali.is

Sími: 543-3296

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisgagnafræðingur á fæðingarvakt

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026