Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Vöru- og verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Vöru- og verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að reynslumiklum vöru- og verkefnastjóra til starfa hjá Stafrænu Íslandi.

Stafrænt Ísland er starfseining innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Hlutverk hennar er að vinna með ráðuneytum, stofnunum og öðrum opinberum aðilum að því að efla stafræna þjónustu við almenning og tryggja þannig skýr, einföld og hraðvirk samskipti. Stærsta verkefni Stafræns Íslands er þróun þjónustugáttarinnar Ísland.is.

Leitað er að drífandi sérfræðingi með sterka samskiptahæfni sem nær árangri í samstarfi og hefur brennandi áhuga á að móta og innleiða stafrænar lausnir í opinberri þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í mótun stefnu og vöruþróunarferils tæknilausna Stafræns Íslands

  • Vöruþróun og útgáfustjórnun hugbúnaðarlausna Stafræns Íslands

  • Verkefnastýring og breytingastjórnun stafrænna umbreytingaverkefna

  • Greiningarvinna, notendarannsóknir og þarfagreiningar

  • Ferla- og umbótagreiningar í samstarfi við ráðuneyti og stofnanir

  • Innleiðing stafrænna kjarnalausna Stafræns Íslands

  • Gerð vegvísa (e. roadmap) og forgangsröðun þróunarverkefna

  • Samskipti við hugbúnaðarhús, birgja og hagaðila

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun

  • Þekking og reynsla af vörustjórnun í hugbúnaðargerð

  • Reynsla af því að leiða þverfagleg teymi til árangurs

  • Góð greiningar- og skipulagshæfni auk sjálfstæðra vinnubragða

  • Þekking og reynsla af verkefna- og breytingastjórnun

  • Þekking og reynsla af innleiðingu stafrænna lausna

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að miðla upplýsingum á skýran hátt

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði

  • Þekking á notkun gervigreindar í hugbúnaðarþróun og innleiðingu þjónustulausna er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. gildandi reglur um auglýsingar lausra starfa.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsækjendum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmi, auk annarra þátta, heildstætt inn í hæfnimatið.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Birna Íris Jónsdóttir

framkvæmdastjóri Stafræns Íslands

Tölvupóstur: birna.jonsdottir@fjr.is

Kristín Gunnarsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: kristin.gunnarsdottir@fjr.is

Þjónustuaðili

Fjármála- og efnahags­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Vöru- og verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026