
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lyfjafræðingur í teymi lyfjaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
31.03.2026
Umsóknarfrestur
14.04.2026
Lyfjafræðingur í teymi lyfjaþjónustu
Lyfjaþjónusta Landspítala leitar eftir öflugum lyfjafræðingi með sterka þjónustulund og færni til að móta nýtt verklag í þéttu samstarfi við aðra lyfjafræðinga sem og aðrar fagstéttir. Viðkomandi þarf að vera sveigjanlegur, framsækinn og tilbúinn að takast á við verkefni í mótun. Um er að ræða dagvinnu.
Lyfjaþjónusta er stöðugt að þróa starfsemi sína til að bæta lyfjaöryggi og lyfjaumsýslu á Landspítala. Lyfjaþjónusta telur um 90 starfsmenn, þar af eru um 40 lyfjafræðingar í afar fjölbreyttum verkefnum á Landspítala. Mikil framþróun er framundan og undirbúningur er hafinn á aukinni sjálfvirknivæðingu, lokuðu lyfjaferli, uppbyggingu á gæðakerfi svo fátt eitt sé nefnt.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með neyðarlyfjum, undanþágulyfjum og úrræði við lyfjaskorti
Umsýsla og afgreiðsla lyfja til deilda sjúkrahússins og sjúklinga
Samskipti við aðrar deildir sjúkrahússins, birgja og opinberar stofnanir
Fagleg ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks um lyfjatengd mál
Afgreiðsla lyfseðla og ráðgjöf til sjúklinga í afgreiðsluapóteki
Gagnaöflun um starfsemi sjúkrahúsapóteks, miðlun upplýsinga og greining á umbótatækifærum
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur
Afbragðs samskiptahæfni. Jákvætt viðmót og mikill sveigjanleiki
Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
Hæfni til að vinna bæði í teymi og sjálfstætt
Reynsla af störfum í sjúkrahúsapóteki er kostur
Góð íslenskukunnátta áskilin
Mjög góð tölvukunnátta s.s. Excel
Þekking á Oracle, lyfseðlaafgreiðslukerfi og Therapy er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lyfjafræðingur,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Tinna Rán Ægisdóttir
Tölvupóstur: tinnara@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lyfjafræðingur í teymi lyfjaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
31.03.2026
Umsóknarfrestur
14.04.2026