Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri á myndgreiningardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

21.04.2026

Aðstoðardeildarstjóri á myndgreiningardeild

Laust er til umsóknar fullt starf aðstoðardeildarstjóra á myndgreiningardeild Landspítala. Starfið er dagvinnustarf.

Við sækjumst eftir metnaðarfullum og framsæknum leiðtoga sem hefur áhuga á stjórnun og markvissu gæða- og umbótastarfi. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf þar sem mikil áhersla er lögð á fagmennsku, framþróun og teymisvinnu. Starfið er laust frá 1. maí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Aðstoðardeildarstjóri heyrir undir deildarstjóra myndgreiningardeildar og starfar náið með deildarstjóra og öðrum stjórnendum að skipulagningu og þróun starfseminnar.

Á myndgreiningardeild starfa á annað hundrað einstaklingar. Þar fer fram fjölbreytt rannsóknarstarfsemi í þágu þeirra sem nýta sér þjónustu Landspítala. Við leggjum ríka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki , skjólstæðingum sem og vinnustaðnum öllum auk góðra samskipta.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur náið með deildarstjóra og öðrum aðstoðardeildarstjórum að mótun liðsheildar og eflingu starfsanda

  • Skipuleggur og þróar starfsemi deildar í samráði við aðra stjórnendur

  • Ber ábyrgð á rekstri, skipulagningu og mönnun í fjarveru deildarstjóra

  • Er leiðandi og virkur þátttakandi í gæðamálum og umbótastarfi á deildinni

  • Ber ábyrgð á tilteknum verkefnum í umboði deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi geislafræðings

  • Starfsreynsla sem geislafræðingur

  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla af stjórnun er kostur

  • Þekking á stjórnun og umbótastarfi er æskilegt

  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni

  • Frumkvæði, yfirsýn, skipulagsfærni og faglegur metnaður til að ná árangri

  • Sjálfstæði í starfi og hæfni til teymisvinnu

  • Framsækinn og dugmikill leiðtogi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, geislafræðingur, stjórnun, aðstoðardeildarstjóri

Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska /45

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Ólöf Þórsdóttir

Tölvupóstur: gudol@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri á myndgreiningardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

21.04.2026