
Þjónustuaðili
Matvælastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Eftirlitsdýralæknir SV-umdæmi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.03.2026
Umsóknarfrestur
09.04.2026
Eftirlitsdýralæknir SV-umdæmi
Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?
Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Suðvesturumdæmi með starfsstöð á Laugarvegi 166. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Matvælastofnuner nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meginmarkmið starfsins er að framkvæma opinbert eftirlit með velferð gæludýra, frumframleiðslu og ábendingum.
Hæfniskröfur
Dýralæknismenntun skilyrði
Býr yfir góðri þekkingu á þörfum, atferli og umönnun mismunandi dýrategunda
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Góð almenn tölvukunnátta
Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum
Íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg
Bílpróf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og aftir af prófskírteini. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Matvælastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Eftirlitsdýralæknir SV-umdæmi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.03.2026
Umsóknarfrestur
09.04.2026