Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Kennarar í húsasmíði

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.03.2026

Umsóknarfrestur

08.04.2026

Kennarar í húsasmíði

Fjölbrautaskóli Suðurlands óskar eftir að ráða tvo kennara á húsasmíðabraut frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða 100 % störf skólaárið 2026 - 2027, staðsett á Selfossi.

FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda.

Um 150 starfa við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennari í húsasmíði ber ábyrgð á undirbúningi, kennslu og námsmati í kennslugreinum sínum samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár.

  • Viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar.

  • Tekur þátt í faglegu samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf og situr kennarafundi.

  • Mikil áhersla er lögð á þétt og mikið samstarf kennara á brautinni.

  • Vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

  • Sveinspróf og meistararéttindi í húsasmíði.

  • Leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019.

  • Kennslureynsla er æskileg.

  • Starfsreynsla sem húsasmiður er skilyrði.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.

  • Ríkur vilji til að leggja á sig framþróun í starfi.

  • Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

  • Áhugi á skólastarfi og færni við að vinna með ungu fólki.

  • Góð tölvukunnátta og hæfni í notkun upplýsingatækni, m.a. Office365.

  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku.

  • Viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Soffía Sveinsdóttir

skólameistari

Tölvupóstur: soffia@fsu.is

Sími: 480-8100

Lárus Gestsson

fagstjóri

Tölvupóstur: larusgestsson@fsu.is

Sími: 480-8100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Kennarar í húsasmíði

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.03.2026

Umsóknarfrestur

08.04.2026