Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í lífvísindum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Aðjúnkt í lífvísindum

Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í lífvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ráðið verður í starfið tímabundið til tveggja ára.

Starfsskyldur aðjúnkts skiptast þannig að 65% starfsins felast í kennslu, 31% í rannsóknum og 4% í stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla innan fræðasviðs lífvísinda með áherslu á líffærafræði og vefjafræði, þ.m.t. fræðileg og verkleg kennsla.

  • Rannsóknir í sérgrein viðkomandi á fræðasviðinu, m.a. leiðbeining í lokaverkefnum nemenda.

  • Þátttaka í stjórnun deildar, þ.m.t. seta í nefndum og öðrum störfum deildar.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf á fræðasviðinu.

  • Rannsóknavirkni á sviði lífvísinda er æskileg.

  • Reynsla af kennslu á háskólastigi í líffæra- og vefjafræði.

  • Reynsla af leiðbeiningu nemenda í rannsóknatengdu framhaldsnámi er æskileg.

  • Reynsla af öflun styrkja til rannsóknastarfa er æskileg.

  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

  • Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí 2026.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Ferilskrá (Curriculum Vitae) þar sem kemur reynsla af kennslu og vísindastarfi kemur skýrt fram

  4. Greinargerð um kennslu- og rannsóknaráform ef til ráðningar kemur

  5. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Pétur Henry Petersen

prófessor

Tölvupóstur: phenry@hi.is

Sími: 5254000

Sædís Sævarsdóttir

forseti Læknadeildar

Tölvupóstur: saedis@hi.is

Sími: 5254881

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í lífvísindum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026