
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á legudeildir réttar- og öryggisgeðþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
09.04.2026
Umsóknarfrestur
21.04.2026
Hjúkrunarfræðingar á legudeildir réttar- og öryggisgeðþjónustu
Hefur þig ekki alltaf langað til að vinna á geðdeild?
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á legudeildir réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala við Klepp.
Réttar- og öryggisgeðþjónusta Landspítala auglýsir laus til umsóknar störf hjúkrunarfræðinga á legudeildum þjónustunnar. Störfin eru nú þegar laus og er starfshlutfall samkvæmt samkomulagi.
Réttargeðdeild og öryggisgeðdeild eru sérhæfðar átta rúma geðdeildir sem annast meðferð einstaklinga með alvarlega og flókna geðræna sjúkdóma. Meðferðarnálgunin er fjölþætt og er háð þörfum og getu hvers og eins en meginmarkmið meðferða er ávallt endurhæfing sjúklinga. Öryggisgeðdeildin flytur nú á vordögum í nýtt húsnæði á Kleppi.
Að undanförnu hefur mikið umbótastarf átt sér stað á deildunum og er starfið í stöðugri þróun til að mæta breyttum aðstæðum, þörfum og væntingum sjúklinga og aðstandenda. Lögð er sérstök áhersla á góða þjónustu við sjúklinga og aðstandendur, öryggi sjúklinga og starfsfólks og faglega uppbyggingu meðferðarstarfs.
Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við sjúklinga og bera ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu
Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur Landspítala
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Virk þátttaka í verkefnavinnu, teymis- og umbótastarfi
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Sérnám og/eða reynsla af geðhjúkrun er kostur
Áhugi á hjúkrun fólks með alvarleg geðræn einkenni, starfsreynsla í Geðþjónustu Landspítala er kostur
Framúrskarandi samskiptahæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Áhugi á þverfaglegu samstarfi og teymisvinnu
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Kleppsgarður, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á legudeildir réttar- og öryggisgeðþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
09.04.2026
Umsóknarfrestur
21.04.2026