Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í almennri hjúkrunarfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Aðjúnkt í almennri hjúkrunarfræði

Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í almennri hjúkrunarfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands.

Starfsskyldur aðjúnkts skiptast þannig að 65% starfsins felast í kennslu, 31% í rannsóknum og 4% í stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla í almennri hjúkrun og öðrum grunngreinum hjúkrunarfræði.

  • Skipulag námsmats, leiðbeining í lokaverkefnum nemenda og önnur kennslutengd verkefni.

  • Rannsóknir á sérsviði viðkomandi.

  • Þátttaka í starfi nefnda og ráða Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.

Hæfniskröfur

  • Gilt hjúkrunarleyfi á Íslandi.

  • Meistara- eða doktorspróf sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af kennslu í grunngreinum hjúkrunar og almennri hjúkrunarfræði.

  • Reynsla af umsjón og kennslu námskeiða í lyfjavinnu hjúkrunarfræðinga.

  • Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum og góð færni til að miðla þekkingu.

  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði.

  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.

  • Góð íslensku og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.

Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt 1. júlí 2026, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Ferilskrá (Curriculum Vitae) þar sem reynsla af kennslu og vísindastarfi kemur skýrt fram

  4. Greinargerð um kennslu- og rannsóknaráform ef til ráðningar kemur

  5. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Bragadóttir

forseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar

Tölvupóstur: helgabra@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í almennri hjúkrunarfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026