
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í hagnýtri atferlisgreiningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
29.04.2026
Lektor í hagnýtri atferlisgreiningu
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í hagnýtri atferlisgreiningu við Háskóla Íslands. Starfið er í þverfaglegri námsleið við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði og við Sálfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði, þar sem lögð er áhersla á börn með sérþarfir. Starfið heyrir formlega undir Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði þar sem starfsaðstaða lektorsins er.
Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í námskeiðum á meistarastigi á sviði hagnýtrar atferlisgreiningar og leiðbeiningu í rannsóknarverkefnum nemenda.
Rannsóknir á sérsviði lektorsins.
Þátttaka í stjórnun, nefndarstarfi og þróun náms í hagnýtri atferlisgreiningu.
Umsjón með starfsþjálfun nemenda á vettvangi í samstarfi við fagaðila innan og utan háskólans.
Viðhald á vottun námsins.
Hæfniskröfur
Doktorspróf á sviði atferlisgreiningar eða skyldri grein, t.d. sálfræði með sérþekkingu á atferlisgreiningu.
Vottun sem klínískur atferlisfræðingur, t.d. frá SATÍS.
Kennslureynsla og leiðbeining lokaverkefna nemenda á háskólastigi er kostur.
Reynsla af rannsóknum með einliðasniði er æskileg.
Rannsóknavirkni, sem kemur m.a. fram í birtingum á ritrýndum vettvangi og reynsla af rannsóknasamstarfi eru æskileg.
Skýr framtíðarsýn um rannsóknir.
Reynsla af hagnýtri atferlisgreiningu í starfi með börnum er kostur.
Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Góð samstarfsfærni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við að einstaklingurinn sem hlýtur starfið falli sem best að aðstæðum og þörfum þverfræðilegu námsleiðarinnar í hagnýtri atferlisgreiningu og þá með tilliti til þarfa beggja deilda og sviða sem að náminu standa.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2026, eftir að þær nefndir sem um málið fjalla hafa lokið störfum.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Nánari upplýsingar um námsleið og tilhögun kennslu á Menntavísindasviði veitir Anna-Lind Pétursdóttir, prófessor. Netfang: annalind@hi.is
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Zuilma Gabríela Sigurðardóttir
Tölvupóstur: zuilma@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í hagnýtri atferlisgreiningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
29.04.2026