Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Störf móttökuritara á Selfossi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

20-72%

Starf skráð

26.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026

Störf móttökuritara á Selfossi

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða tvo starfsmenn til starfa í móttöku HSU á Selfossi. Um er að ræða tímabundna ráðningu og ótímabundna ráðningu. Annars vegar er um starf í sumarafleysingu að ræða yfir tímabilið 1.júní 2026 til 30.ágúst 2026 og hins vegar helgarstarf þar sem unnið er aðra hverja helgi, sem gæti tilvalið fyrir námsmenn.

Móttaka HSU á Selfossi sinnir almennri móttöku, afgreiðslu og símsvörun þvert á allar starfseiningar HSU á Selfossi. Starfið er fjölbreytt, unnið er í teymi og engin dagur er eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga.

  • Símsvörun, ýmiss konar umsýsla og skráning gagna auk samskipta við aðrar deildir HSU.

  • Önnur tilfallandi störf.

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg

  • Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, framúrskarandi hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum

  • Góð tölvukunnátta er skilyrði, þekking á Sögukerfinu er æskileg

  • Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og þarf að geta átt samskipti á ensku

  • Náms- og starfsferilskrá fylgi umsókn

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

  • Unnið er í vaktavinnu.

  • Upphafsdagur starfs er 1. júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Starfshlutfall er 20-72%

Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Greta Sverrisdóttir

Tölvupóstur: greta.sverrisdottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Störf móttökuritara á Selfossi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

20-72%

Starf skráð

26.03.2026

Umsóknarfrestur

10.04.2026