
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Líffræðikennari
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
13.04.2026
Líffræðikennari
Viltu taka þátt í að veita ungu fólki framúrskarandi undirbúning fyrir lífið?
Fjölbrautaskóli Suðurlands leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf líffræðikennara frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða afleysingu í 80-100 % stöðu haustönn 2026 með möguleika á áframhaldandi ráðningu vorið 2027.
FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda.
Um 150 starfsmenn vinna við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennari ber ábyrgð á undirbúningi kennslu, kennslu og námsmati í sinni námsgrein samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár.
Tekur þátt í faglegu samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf og situr kennarafundi.
Vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í líffræði eða skyldum greinum.
Meistaragráða í líffræði eða skyldum greinum er æskileg.
Leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019.
Kennslureynsla og góð þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum er æskileg.
Kostur ef viðkomandi getur kennt skyldar námsgreinar.
Áhugi á skólastarfi og vinnu með ungu fólki.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku.
Faglegur metnaður, frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.
Reynsla og hæfni í notkun upplýsingatækni, m.a. Office365.
Viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Líffræðikennari
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
13.04.2026