
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í barnalækningum - heilbrigðisþjónusta við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Sérfræðilæknir í barnalækningum - heilbrigðisþjónusta við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í barnalækningum á bráðamóttöku barna við Barnaspítala Hringsins. Auk starfa á bráðamóttöku barna er meginverkefni starfsins þátttaka í uppbyggingu og þróun nýrrar ofbeldis- og áfallamóttöku barna, sem falið er að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast sérhæfðrar, samfelldrar og áfallamiðaðrar þjónustu.
Starfið felur í sér einstakt tækifæri til að hafa áhrif á mótun og uppbyggingu nýrrar þjónustu og hentar sérfræðingi sem vill vinna í nánu samstarfi við fjölbreyttan hóp hagaðila og hafa raunveruleg áhrif á velferð barna til framtíðar.
Fagaðilum sem ráða sig til þjónustu í nýju teymi býðst markviss þjálfun og fræðsla, hérlendis sem erlendis. Aðal starfsstöð verður á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins og unnið verður í nánu samstarfi við þverfaglegt teymi fagfólks.
Starfshlutfall er 50% og er upphaf starfa samkomulagsatriði en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf ekki seinna en 1. sept. 2026. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs.
Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. Í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinganna, með gildi Landspítala um umhyggju, fagmennsku, öryggi og framþróun að leiðarljósi. Samskipti sem byggja á virðingu og stuðningi við börnin og fjölskyldur þeirra er mikilvægur þáttur í starfsemi Barnaspítalans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sérfræðistörf í samráði við viðkomandi yfirlækni
Þátttaka í almennu starfi barnalækna á Barnaspítala Hringsins með höfuðáherslu á bráðamóttöku barna
Þátttaka á vöktum eftir samkomulagi
Virk þátttaka í þverfaglegu teymi
Skipulagning og þróun þjónustu á stefnumótandi grunni
Gæða- og umbótastarf á þverfaglegum grundvelli
Skipulag og þróun umbótaverkefna og verkferla
Þátttaka í kennslu og vísindavinnu sem og önnur sérverkefni, umsjónarstörf eða eftirlitsverkefni í samráði við yfirlækni og prófessora
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í barnalækningum
Jákvætt viðmót og mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Reynsla af kennslu og vísindastörfum
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvisa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 5/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Gunnlaugur Sigfússon
Tölvupóstur: gulli@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í barnalækningum - heilbrigðisþjónusta við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026