Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Tilrauna­stöð Háskóla Íslands í meina­fræði að Keldum

Upplýsingar um starf

Starf

Nýdoktor óskast til starfa við megindlega (magnbundna) erfðafræði, stofnerfðafræði og þróunarlíffræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.03.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Nýdoktor óskast til starfa við megindlega (magnbundna) erfðafræði, stofnerfðafræði og þróunarlíffræði

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum (Keldur) auglýsa eftir nýdoktor til að vinna að rannsóknarverkefni sem fjallar um erfðafræðilegar og sameindalíffræðilegar undirstöður smækkunar hjá íslenskri bleikju (Salvelinus alpinus).

Verkefnið beinist einkum að dvergbleikju (small benthic morph), sem lifir í ferskvatnskerfum víðs vegar um Ísland. Þetta eru tær, köld, ferskvatnskerfi sem streyma í gegnum gljúpt hraun og mynda flókin og fjölbreytileg búsvæði. Slík vistkerfi hafa ítrekað leitt til samhliða þróunar á þessari smágerðu bleikju. Hún sýnir ákveðin formfræðileg einkenni, m.a.: i) minni stærð við kynþroska (um 12 cm) miðað við almenna bleikjustofna (um 55 cm), ii) lægri aldur við kynþroska (2-3 ár miðað við 5-7 ár), iii) hægari vöxt, iv) seiðalegt útlit, þ.e. hún er undirmynnt með stutt trýni, og v) hún hefur feluliti og heldur seiðablettum (parr marks) á fullorðinsaldri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Nýdoktorinn mun starfa í þverfaglegu rannsóknarteymi og taka þátt í lykilverkefnum, þar á meðal rannsóknum á stofnerfðafræði villtra bleikjustofna, kortlagningu á einkennum með því að greina erfðatengsl þeirra (GWAS) í erfðamengi dvergbleikja, kortlagningu magnbreytusæta (QTL) á grundvelli stýrðra kynbóta/víxlana einstaklinga, auk þess að greina svæði í erfðamengjum sem bera merki náttúrulegs vals. Nýdoktorinn mun gegna lykilhlutverki í samþættingu erfðagagna og svipfarsgagna ásamt nánari greiningum á áhugaverðum genum og skilgreiningu sameindalíffræðilegra ferla sem tengjast smækkun. Niðurstöðunum er ætlað að stuðla að auknum skilningi á þróunarfræðilegum ferlum sem móta þessa áberandi vistfræðilegu aðlögun.

Hæfniskröfur

  • Doktorsgráða í líffræði, erfðafræði, lífupplýsingafræði eða skyldu sviði

  • Sterkur bakgrunnur í megindlegri erfðafræði, þróunarlíffræði eða vistfræði

  • Reynsla af úrvinnslu og greiningu erfðamengisgagna

  • Færni í tölfræðiforritun (t.d. R eða Python)

  • Mjög góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli

  • Reynsla af QTL-kortlagningu eða GWAS er æskileg

  • Reynsla af vinnu með lífverur sem ekki eru hefðbundin tilraunalíkön er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.

Jákvætt viðmót, hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki og nákvæmni í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar í fari umsækjenda. Jafnframt þurfa umsækjendur að búa yfir góðri skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.

Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á árs framlengingu.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst og ekki síðar en 1. ágúst 2026.

Með umsókn verður að fylgja kynningarbréf (hámark 2 bls.) þar sem rannsóknarreynsla og hæfni eru rakin, ferilskrá með yfirliti yfir birtar greinar og tengiliðaupplýsingar tveggja meðmælenda.

Við ráðningu í starfið er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er vísinda- og háskólastofnun á sviði dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar er að finna á keldur.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kalina Hristova Kapralova

Sérfræðingur

Tölvupóstur: kalina@hi.is

Sími: 585 5106

Þjónustuaðili

Tilrauna­stöð Háskóla Íslands í meina­fræði að Keldum

Upplýsingar um starf

Starf

Nýdoktor óskast til starfa við megindlega (magnbundna) erfðafræði, stofnerfðafræði og þróunarlíffræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.03.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026