
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari á Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.03.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Sjúkraþjálfari á Landakoti
Við óskum eftir að ráða tvo sjúkraþjálfara í okkar góða hóp í sjúkraþjálfun á Landakoti.
Hér er kjörið tækifæri til að dýpka þekkingu og verða hluti af skemmtilegri og öflugri liðsheild. Á Landakoti fer fram sérhæfð og þverfagleg endurhæfing fjölbreytts hóps sjúklinga. Lögð er áhersla á greiningarvinnu, fagþróun, kennslu og þverfaglegt samstarf. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum aðlögun undir handleiðslu reyndra sjúkraþjálfara.
Fríðindi í starfi eru meðal annars sveigjanlegur vinnutími, engin kvöld- eða helgarvinna fyrir utan nokkra rauða daga á ári, aðgangur að mötuneyti og afsláttur á verði máltíða, tækifæri til símenntunar með aðgangi að fjölbreyttum innri námskeiðum. Einnig býður Landspítali starfsfólki sínu uppá samgöngusamning.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 klst. á viku vegna styttri vinnuviku en markmiðið er að stuðla að betri heilsu starfsfólks þar sem vinnutíminn er nýttur betur og starfsfólk hefur með því aukna möguleika til að samþætta vinnu og einkalíf.
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi og er æskilegt að umsækjandi geti hafið störf 1. júni 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining, meðhöndlun og endurhæfing sjúklinga
Fræðsla fyrir sjúklinga og aðstandendur
Skráning í sjúkraskrákerfi Landspítalans
Þátttaka í fjölfaglegum teymisfundum
Undirbúningur og skipulagning endurhæfingaáætlana
Þáttaka í fagþróun og umbótastarfi
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Starfið auglýst 25.03.2026. Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 20.04.2026.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfun, endurhæfing
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Túngata, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður S Einarsdóttir
Tölvupóstur: ragnheie@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari á Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.03.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026