Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

14.04.2026

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild

Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við skipulag og umsjón með útskrift sjúklinga á hjarta-, lungna og augnskurðdeild og nýrnalækningadeild við Hringbraut.

Starfshlutfall er 50%. Um er að ræða dagvinnu á virkum dögum og möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma sem hægt er að aðlaga eftir óskum starfsmanns. Starfið er laust frá 1. júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Möguleiki er á starfi í hærra starfshlutfalli á deildinni, t.d. í vaktavinnu á móti umsjón með útskriftum.

Hjarta-, lungna og augnskurðdeild þjónar fjölbreyttum hópi hjarta-, lungna-, augn- og nýrnasjúklingum. Tilvalið tækifæri til að þróa faglega færni á blandaðri skurð- og lyflækningadeild.

Á deildinni starfa um 60 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi á deildinni og mikill jafningjastuðningur og fjölmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Þórgunni, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulag og umsjón með árangursríkum útskriftum sjúklinga í samstarfi við fjölskyldur, aðra fagaðila og stofnanir

  • Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð

  • Virk þátttaka í þróun og umbótum í starfi deildarinnar

  • Fylgjast með nýjungum í hjúkrun

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Góð almenn þekking á íslensku heilbrigðiskerfi og félagsþjónustu er kostur

  • Reynsla af stjórnun verkefna er kostur

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þórgunnur Jóhannsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: thorgunj@landspitali.is

Sími: 663-5823

Kristín Rut Þórðardóttir

aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: kristtho@landspitali.is

Sími: 543-7310

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

14.04.2026