Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í innkirtlalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

26.03.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026

Sérfræðilæknir í innkirtlalækningum

Við leitum að áhugasömum og framsæknum sérfræðilækni til starfa í þverfaglegu teymi á innkirtladeild Landspítala. Auk klínískrar þjónustu er kennsla, umbótavinna og rannsóknir verðmætir þættir starfsins.

Innkirtladeild Landspítala er staðsett að Eiríksgötu 5 í Reykjavík í nýrri göngudeildar aðstöðu en sinnir einnig verkefnum á öðrum heilbrigðisstofnunum. Deildin skilgreinir sig sem öndvegissetur innkirtlafræða á Íslandi og er í fararbroddi hvað varðar nýjungar í heildrænni gildismiðaðri en jafnframt skilvirkri göngudeildarþjónustu við alla landsmenn.

Við viljum ráða skipulagðan, lausnamiðaðan einstakling með framúrskarandi samskiptahæfni sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfshlutfall er samkomulagsatriði þó fullt starf sé æskilegast. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Teymisvinna á göngudeildum innkirtlalækninga

  • Ráðgjöf innkirtlalækninga

  • Þátttaka í vaktþjónustu innkirtlalækninga

  • Þátttaka í viðfangsefnum almennra lyflækninga

  • Þátttaka í kennslu og rannsóknarstarfi

Hæfniskröfur

  • Sérfræðileyfi í almennum lyflækningum með innkirtlalækningar sem undirsérgrein

  • Breið þekking og reynsla í almennum lyflækningum

  • Breið þekking og reynsla í innkirtlasjúkdómum

  • Teymishugsun og samskiptafærni

  • Frumkvæði og áhugi á að þróa gildismiðaða heilbrigðisþjónustu

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir,

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5

Staðsetning: Eiríksgata, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Jóna Einarsdóttir

Tölvupóstur: margjone@landspitali.is

Sími: 649-8503

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í innkirtlalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

26.03.2026

Umsóknarfrestur

15.05.2026