
Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Stærðfræðikennari við Menntaskólann við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
75-100%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
14.04.2026
Stærðfræðikennari við Menntaskólann við Hamrahlíð
Menntaskólinn við Hamrahlíð óskar eftir að ráða stærðfræðikennara. Menntaskólinn við Hamrahlíð er framhaldsskóli sem byggir á áfangakerfi. Boðið er upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum og alþjóðlegri námsbraut, IB-braut, auk náms á fjölnámsbraut. Rúmlega 100 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru að jafnaði 900-1000.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í áföngum í stærðfræði á stúdentsprófsbrautum og í IB-námi skólans. Kennarinn ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í viðkomandi faggrein og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari (vera með leyfisbréf sem kennari) og vera með háskólapróf í stærðfræði.
Hæfniskröfur
Uppfylla kröfur um menntun og hæfni samkvæmt lögum nr. 95/2019.
Hafa metnað, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar að leiðarljósi í starfi.
Búa yfir samskiptafærni og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt.
Geta kennt stærðfræði jafnt á íslensku sem ensku.
Mjög góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni, m.a. kunnátta og þekking á kennslukerfi Innu og Office365.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, starfatorg.is. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn ásamt þeim gögnum í viðhengi sem umsækjendur telja skipta máli í ráðningarferlinu, t.d. prófskírteinum, sakavottorði og leyfisbréfi. Innsend gögn verða lögð til grundvallar ráðningu í starfið. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 75-100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: rektor@mh.is

Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Stærðfræðikennari við Menntaskólann við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
75-100%
Starf skráð
26.03.2026
Umsóknarfrestur
14.04.2026