Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starf í þvottahúsi Landspítala - afgreiðsla

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026

Starf í þvottahúsi Landspítala - afgreiðsla

Aðfangaþjónusta Landspítala auglýsir eftir starfsfólki í þvottahús. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Leitast er eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika, vinnur vel í hóp og á auðvelt með að takast á við fjölbreytt verkefni.

Í þvottahúsi Landspítala starfa um 50 einstaklingar sem sjá um þvott, afgreiðslu og endurnýjun á öllu líni fyrir Landspítala. Í þvottahúsinu eru þvegin hundruð tonna árlega, meðal annars allur fatnaður starfsfólks og sjúklinga, en einnig sængur, koddar og hvers konar rúmfatnaður. Starfsfólk í þvottahúsi heyrir undir teymisstjóra sem er ábyrgur fyrir því að starfsemi þvottahúss gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum.

Starfið felst í því að sinna afgreiðslu og tiltekt pantana, auk samskipta við viðskiptavini vegna pöntunargerðar. Starfinu fylgir einnig umsýsla með óskilamuni sem berast í þvottahús.

Þvottahús Landspítala er staðsett á Tunguhálsi 2 og er hluti af aðfangaþjónustu Landspítala sem rekur einnig vöruhús, flutningaþjónustu og deildaþjónustu spítalans. Vinnutími er dagvinna, frá kl. 8:00-15:12.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla og tiltekt pantana til viðskiptavina

  • Aðstoð við móttöku og gerð pantana sem berast í síma og tölvupósti

  • Þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tilheyra í þvottahúsi

Hæfniskröfur

  • Góð almenn tölvuþekking

  • Jákvætt og lausnamiðað viðhorf

  • Góð íslenskukunnátta í tali og riti

  • Fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Þjónustulund, hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Góð enskukunnátta kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Efling stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Tungumálahæfni: enska 3/5, íslenska 4/5

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, þvottahús

Staðsetning: Tunguháls, 110 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hjörtur Sigvaldason

Tölvupóstur: hjortusi@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starf í þvottahúsi Landspítala - afgreiðsla

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.03.2026

Umsóknarfrestur

07.04.2026