
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Við leitum eftir skipulögðum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á geðhjúkrun og stjórnun, teymisvinnu og umbótastarfi á líflegri deild þar sem enginn dagur er eins.
Bráðalegudeild lyndisraskana er 17 rúma legudeild sem sinnir móttöku, greiningu og meðferð sjúklinga með alvarlegar og bráðar geðraskanir. Deildin sérhæfir sig m.a. í meðferð sjúklinga með átraskanir og í greiningu og meðferð á konum með alvarlegar geðraskanir og/ eða ef grunur leikur á tengslaröskun á meðgöngu og eftir fæðingu. Starfsemi deildarinnar er í mikilli þróun og umbótastarf er mikið. Unnið er að eflingu þverfaglegrar teymisvinnu.
Á deildinni er mjög góður starfsandi, frábært samstarfsfólk og tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu og hæfni í geðhjúkrun. Ráðið verður í starfið frá 1. maí 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Er leiðandi í klínísku starfi, framþróun hjúkrunar og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
Virk þátttaka í teymisvinnu
Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við deildarstjóra
Ber ábyrgð á daglegri skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í samráði við deildarstjóra
Ber ábyrgð á öðrum verkefnum sem deildarstjóri felur honum
Stuðlar að hvetjandi og jákvæðu starfsumhverfi og stöðugri liðsheild
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur
Áhugi og reynsla af þverfaglegu samstarfi, teymisvinnu og umbótastarfi
Jákvætt viðmót og mjög góð hæfni í samskiptum
Reynsla af bráðageðhjúkrun
Reynsla af stjórnun og/ eða forystu er kostur
Reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala er kostur
Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
Mikil aðlögunarfærni og geta til að starfa í fjölbreyttu og álagsmiklu umhverfi
Frumkvæði og sjálfstæði
Mjög góð kunnátta í íslensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri hjúkrun, hjúkrun, stjórnun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026