
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í samskiptafræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
25%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026
Lektor í samskiptafræði
Laust er til umsóknar 25% starf lektors innan fræðasviðs samskiptafræði við Læknadeild Háskóla Íslands.
Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og umsjón með námskeiðum innan fræðasviðs samskiptafræði við Læknadeild Háskóla Íslands, þ.m.t. klínísk kennsla á Landspítala með áherslu á samskipti við sjúklinga með fjölþætt veikindi.
Kennsla í öðrum greinum heilbrigðisvísinda sem tengjast klínískum samskiptum.
Rannsóknir á sérsviði viðkomandi á fræðasviðinu.
Þátttaka í nefndarstörfum og öðrum stjórnunarstörfum.
Hæfniskröfur
Doktorspróf á fræðasviðinu eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.
Íslenskt lækningaleyfi og víðtæk reynsla af klínísku starfi.
Reynsla af fræðilegri klínískri kennslu á háskólastigi.
Stjórnunarreynsla er æskileg.
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sem kemur m.a. fram í birtingum á ritrýndum vettvangi.
Reynsla af leiðsögn til æðri háskólagráðu er kostur.
Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er kostur.
Reynsla af setu í nefndum og fagráðum innan heilbrigðisvísinda er kostur.
Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 25%
Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í samskiptafræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
25%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026