
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Tímabundið starf í býtibúr og þjónustustuðning á legudeild geðrofssjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-80%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
13.04.2026
Tímabundið starf í býtibúr og þjónustustuðning á legudeild geðrofssjúkdóma
Við óskum eftir að ráða til starfa öfluga liðsmanneskju í okkar góða hóp á legudeild geðrofssjúkdóma. Starfið felst í umsjón með umhverfi deildar s.s. undirbúningi og frágangi matmálstíma, línherbergi, þvottahúsi, geymslurýmum, starfsmannaaðstöðu og almennum rýmum og skipulagi á nauðsynlegu viðhaldi, ásamt virkum samskiptum við sjúklinga og samstarfsfólk.
Leitað er eftir þjónustulundaðri, lausnamiðaðri og jákvæðri manneskju sem er sjálfstæð og skipulögð í starfi. Viðkomandi er virkur þátttakandi í starfsemi deildarinnar og þarf að geta sýnt sveigjanleika í því síbreytilega umhverfi sem deildin er. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sæki námskeið í grunnendurlífgun og sé vel að sér varðandi sóttvarnir og smitgát.
Á deildinni eru rými fyrir 16 skjólstæðinga, þar sem einstaklingar með geðrofssjúkdóma fá sérhæfða meðferð, allt frá bráðum veikindum og endurhæfingu. Deildarstarfið byggir á samvinnu þar sem mikilvægt er að sérhver starfsmaður fær að nýta styrkleika sína.
Starfið er dagvinna, fyrri hluta dags alla virka daga og er starfshlutfall eftir samkomulagi 60-80%.
Um er að ræða tímabundna ráðningu vegna afleysingar frá 1. júní 2026 til 1. september 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur matmálstíma með því að sækja matarvagn og bera mat á borð
Frágangur í matsal og eldhúsi eftir matmálstíma
Ber ábyrgð á að almennt rými deildar sé snyrtilegt
Ber ábyrgð á að þvottahús, skol og lín sé snyrtilegt
Yfirumsjón með pöntun og frágangi matvæla og nauðsynjavara
Er hluti af teymi deildar og tekur þátt í að meta geðhag sjúklinga eins og við á
Stuðlar að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af starfi á Landspítala er kostur
Reynsla af starfi í matarþjónustu er kostur
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, drifkraftur og sveigjanleiki
Hæfni og geta til að starfa sjálfstætt sem og í teymi
Stundvísi, áreiðanleiki, hreinlæti og snyrtimennska
Áhugi á að starfa með einstaklingum með geðrænar áskoranir
íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum og hvetjum við fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, býtibúr, kaffistofa, þjónustustörf, teymisvinna, umbætur,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-80%
Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðfinna Betty Hilmarsdóttir
Tölvupóstur: gudfinna@landspitali.is
Una Lind Hauksdóttir
Tölvupóstur: unalh@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Tímabundið starf í býtibúr og þjónustustuðning á legudeild geðrofssjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-80%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
13.04.2026