Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í íslenskum bókmenntum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

21.04.2026

Lektor í íslenskum bókmenntum

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í íslenskum bókmenntum innan námsbrautarinnar Íslensku sem annars máls við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði Háskóla Íslands.

Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla og umsjón með námskeiðum á sviði íslenskra bókmennta síðari alda þ.m.t. samtíma- og innflytjendabókmennta

  • Rannsóknir á fagsviðinu og miðlun þeirra

  • Leiðbeining nemenda við gerð lokaverkefna

  • Þátttaka í þróun kennsluhátta og uppbyggingu námsbrautarinnar

  • Stjórnunarstörf innan deildar og fræðasviðs, þar á meðal seta í nefndum

  • Þátttaka í þróun þverfræðilegs samstarfs um kennslu og rannsóknir

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í bókmenntum

  • Virkni í rannsóknum á sviði íslenskra bókmennta

  • Nám í kennslufræðum er kostur

  • Reynsla af kennslu á háskólastigi

  • Reynsla af leiðbeiningu nemenda á háskólastigi er kostur

  • Reynsla af stjórnun er kostur

  • Góð íslenskukunnátta, í ræðu og riti

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í störfum

Við ráðningu verður horft til þess að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og sviðs.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 1. júlí 2026 eða eftir að þær nefndir sem um málið fjalla hafa lokið störfum.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Gauti Kristmannsson

deildarforseti Íslensku- og menningardeildar

Tölvupóstur: gautikri@hi.is

Sími: 5254400

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í íslenskum bókmenntum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.03.2026

Umsóknarfrestur

21.04.2026