
Þjónustuaðili
Matvælastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Forritari
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Forritari
Matvælastofnun er að leita að öflugum einstaklingi í spennandi starf forritara. Starfið er á Selfossi eða öðrum starfsstöðvum stofnunarinnar utan höfuðborgarsvæðisins. Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni forritara felast í þróun, viðhaldi og rekstri hugbúnaðarlausna, þar sem áhersla er lögð á að tryggja stöðugan og skilvirkan rekstur kerfa. Starfið krefst virkrar þátttöku í nýsköpun og þróun í náinu samstarfi við aðra sérfræðinga, auk þess sem forritari tekur þátt í hönnunar- og greiningarvinnu ásamt teyminu. Forritarar vinna bæði sjálfstætt og í samvinnu við teymi, allt eftir eðli og þörfum verkefna hverju sinni. Einnig felst í starfinu að bæta og þróa ferla, verklag og vinnubrögð innan teymisins til að stuðla að stöðugum umbótum og betri árangri.
Við leitum að einstaklingi sem:
Hefur góða samskiptahæfni, lausnamiðaða hugsun og skipulag í vinnubrögðum.
Sýnir frumkvæði, drifkraft og hefur jákvætt viðmót.
Hefur vilja til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Hefur vilja til að tileinka sér nýjustu tækni og lausnir.
Hefur vilja til að þróast í starfi og miðla þekkingu.
Hefur enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammnum.
Hefur íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Hæfniskröfur
Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða skyldum greinum.
Reynsla af .NET / C#.
Reynsla af SQL (PostgreSQL eða álíka).
Reynsla af smíði veflausna.
Reynsla af React, Next.js.
Þekking á AWS er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsækjandi sækir um starf. Í boði er 36 stunda vinnuvika, fjarvinnumöguleikar allt að 2 daga í viku og ýmis hlunnindi eins og símastyrkur, heilsuræktarstyrkur ofl. Einnig búum við að öflugu starfsmannafélagi sem skipuleggur viðburði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Matvælastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Forritari
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026