
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Nýdoktor í verkefninu Samstaða í vísindum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.03.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026
Nýdoktor í verkefninu Samstaða í vísindum
Laus eru til umsóknar tvö full störf nýdoktora við Heimspekistofnun á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Störfin tengjast rannsóknaverkefninu Samstaða í vísindum sem styrkt er með öndvegisstyrk frá Rannsóknasjóði (RANNÍS). Störfin eru tímabundin til þriggja ára.
Það hvort samstaða ríki meðal vísindafólks um tilteknar kenningar getur skipt sköpum um það hvernig vísindin þróast og hvaða afstöðu almenningur tekur til vísindakenninga. Sem dæmi má nefna að ef samstaða er um tiltekna vísindakenningu meðal helstu sérfræðinga er vísindafólk af öðrum sviðum oft einnig tilbúið að fallast á kenninguna, byggja rannsóknir sínar á henni og miðla kenningunni til almennings. Á hinn bóginn sýnir vísindasagan að stundum hefur mikil samstaða ríkt um alrangar kenningar, auk þess sem mikil samstaða meðal vísindafólks getur í sumum tilvikum komið í veg fyrir að eðlilegar rökræður eigi sér stað meðal vísindafólks. Verkefnið hverfist um að svara tveimur grundvallarspurningum um það hvernig samstaða vísindafólks er notuð sem rök fyrir vísindalegum kenningum:
Í hverskonar aðstæðum, og í krafti hvers, er rökrétt og réttmætt að færa fram rök sem höfða til þess að samstaða ríki meðal vísindafólks um tiltekna kenningu?
Hvernig má nýta slík rök til að stuðla að réttmætu trausti á vísindalegum rannsóknum og auknum framförum í vísindum?
Verkefnið Samstaða í vísindum miðar að því að svara þessum spurningum á nýstárlegan og kerfisbundinn hátt með því að þróa kenningakerfi sem byggir á aðferðafræðilegri þríhyrningamælingu (e. triangulation), þ.e. notkun ólíkra aðferða til að svara sömu spurningum, og með því að draga mikilsverða lærdóma af nætlegum heimspekirannsóknum á eðli og afleiðingum ágreinings. Verkefnið hefur þrjú meginmarkmið:
Að þróa nákvæma þekkingarfræðilega kenningu um áreiðanleika röksemdafærslna sem höfða til samstöðu, ásamt hagnýtum ráðleggingum um hvernig best sé að styðjast við slíkar röksemdafærslur við raunverulegar aðstæður.
Að setja fram þekkingarfræðilega réttlætingu fyrir því að miðla vísindalegum niðurstöðum og kenningum með því að höfða til samstöðu innan vísinda, til dæmis með svonefndri samstöðumiðlun (e. consensus reporting), og skýra hvernig það geti verið skynsamleg leið fyrir almenning til að mynda sér skoðanir um vísindarannsóknir.
Að þróa nákvæma kenningu um það hvaða hlutverki samstaða gegnir í framförum vísindanna sjálfra og yfirfæra þessa kenningu síðan á, eða bera það saman við, framfarir á öðrum rannsóknarsviðum, svo sem í heimspeki.
Verkefninsstjóri rannsóknaverkefnisins er Finnur Dellsén (Háskóla Íslands og & University of Inland Norway) og meðrannsakendur eru Joey Pollock (Háskólinn í Osló), Dunja Seselja (Ruhr University Bochum & TU Eindhoven), og Peter Vickers (Durham University). Að auki felur verkefnið í sér samstarf við ráðgjafanefnd sem er skipuð efirfarandi aðilum: Maria Baghramian (University College Dublin), Franz Dietrich (Paris School of Economics & CNRS/CES), Mikkel Gerken (University of Southern Denmark), Stephan Lewandowsky (University of Bristol), Cailin O¿Connor (University of California, Irvine), og Miriam Solomon (Temple University).
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknir og birtingar niðurstaðna
Kynningar á niðurstöðum rannsóknarinnar á vísindaráðstefnum og fundum
Aðstoð við daglegan rekstur rannsóknaverkefnisins
Samstarf og reglulegir fundir með rannsóknateymi rannsóknaverkefnisins
Ætlast er til að nýdoktorinn vinni við verkefnið að mestu leyti á starfstöð við Háskóla Íslands til að efla samstarf innan verkefnisins.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á sl. fimm árum miðað við upphafsdag styrksins (tekið er tillit til þess ef veikindi, fæðingarorlof o.þ.h. hafa haft áhrif á feril umsækjanda)
Góð enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli.
Rannsóknarbakgrunnur tengdum sviði rannsóknarinnar
Sérþekking á a.m.k. öðru af eftirfarandi rannsóknarsviðum:
Félagsleg þekkingarfræði, helst með þjálfun eða sannanlegan áhuga á formlegri þekkingarfræði og/eða beitingu tölvuhermana á heimspekileg álitamál (svo sem þau sem kallast á ensku agent-based models).
Vísindaheimspeki, helst með þjálfun eða sannanlegan áhuga á félagsþekkingafræði vísinda og/eða vísindasögu og/eða heimspeki heimspekinnar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf 1. september 2026, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Akademísk ferilskrá
Stutt umsóknarbréf (allt að 400 orðum). Í bréfinu skal fjalla um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Fræðilegt ritsýni (t.d. fræðigrein eða bókarkafli)
Afrit af prófskírteinum, bæði MA og doktorsgráða
Upplýsingar um tvo til þrjá umsagnaraðila ásamt símanúmerum og netföngum
Að loknu mati á umsækjendum verður settur saman lengri listi umsækjenda (longlist). Þeir umsækjendur sem komast á þann lista fá nánari upplýsingar um verkefnið og verða beðnir um að skila skriflegri lýsingu á þeim rannsóknum sem þeir hyggjast stunda í starfinu (þ.e. rannsóknarlýsingu). Að loknu mati á umsækjendum á lengri listanum og rannsóknaryfirlýsingum þeirra verður útvöldum umsækjendum boðið í viðtal.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eiríkur Smári Sigurðarson
Tölvupóstur: esmari@hi.is
Finnur Ulf Dellsén
Tölvupóstur: fud@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Nýdoktor í verkefninu Samstaða í vísindum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.03.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026