Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar - Göngudeild hjartagáttar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

09.04.2026

Hjúkrunarfræðingar - Göngudeild hjartagáttar

Viltu taka þátt í að móta og efla þjónustu fyrir hjartasjúklinga á göngudeild hjartagáttar?

Göngudeild hjartagáttar við Hringbraut leitar að reyndum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum sem vilja taka þátt í að þróa og efla sérhæfða göngudeild innan hjartaþjónustu Landspítala.

Um er að ræða uppbyggingu og áframhaldandi þróun á þjónustu fyrir sjúklinga með hjartasjúkdóma svo sem kransæðasjúkdóm, hjartabilun, arfgenga hjartasjúkdóma og meðfædda hjartagalla. Jafnframt felst í starfinu að styrkja og þróa þjónustu við krabbameinssjúklinga sem eru í aukinni áhættu á fylgikvillum tengdum hjarta- og æðakerfi.

Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að efla faglega þekkingu á sérhæfðu sviði og leggja mikilvægt framlag til heilbrigðisþjónustu við fjölskyldur og einstaklinga.

Ráðning hefst 1. júní eða eftir samkomulagi og er starfshlutfall 80-100%/ (umsemjanlegt).

Af hverju að velja okkur?

Fagleg tækifæri

  • Einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga

  • Sjálfstæð vinnubrögð í krefjandi og fjölbreyttu starfi

  • Tækifæri til að þróa sérhæfða þekkingu í hjúkrun hjartasjúklinga

Frábær vinnustaður

  • 36 stunda vinnuvika í fullri dagvinnu

  • Betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs

  • Náið samstarf fagaðila í þverfaglegu teymi

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú verður lykilþátttakandi í hjúkrun og stuðningi við einstaklinga með hjartasjúkdóm.

  • Hjúkrun og fræðsla - Veitir sjúklingum og aðstandendum einstaklingsmiðaða þjónustu, fræðslu og stuðning

  • Ráðgjöf - Nýtir sérþekkingu þína í samstarfi við aðra fagaðila og veitir símaráðgjöf

  • Teymisvinna - Tekur virkan þátt í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þróunarstarf - Tekur þátt í uppbyggingu og áframhaldandi þróun þjónustunnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Jákvæðni og góða samskiptahæfni

  • Reynsla af hjúkrun hjartasjúklinga og/ eða langveikra æskileg

  • Áhuga á hjúkrun hjartasjúklinga

  • Sjálfstæð vinnubrögð

  • Faglegur metnaður og áhugi á þróunarstarfi

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Valdís Anna Garðarsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: valdisag@landspitali.is

Sími: 825-9320

Bylgja Kærnested

forstöðuhjúkrunarfræðingur

Tölvupóstur: bylgjak@landspitali.is

Sími: 825-5106

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar - Göngudeild hjartagáttar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

30.03.2026

Umsóknarfrestur

09.04.2026