
Þjónustuaðili
Landhelgisgæsla Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Starf í flugrekstrardeild Landhelgisgæslunnar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Starf í flugrekstrardeild Landhelgisgæslunnar
Landhelgisgæsla Íslands leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum í lifandi og krefjandi umhverfi í flugrekstrardeild Landhelgisgæslunnar. Um er að ræða tímabundið starf með möguleika á fastráðningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með handbókum
Verkefnastjórn ýmissa þátta flugrekstrardeildar
Verkefni tengd þjálfun áhafna
Samskipti við flugmálayfirvöld og aðra flugrekendur
Önnur tilfallandi verkefni á sviði flugrekstrardeildar
Hæfniskröfur
Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Haldbær þekking á reglugerðarumhverfi í flugstarfsemi
Reynsla af verkefnastjórn kostur
Þekking á WebManuals og SMS360 kostur
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, nákvæmni og skipulagshæfileikar
Mjög góð tölvufærni skilyrði
Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er borgaraleg öryggis-, eftirlits- og löggæslustofnun sem sinnir öryggisgæslu og björgun á hafi úti og fer með löggæslu á hafinu. Samkvæmt lögum nr. 52/2006 um Landhelgisgæslu Íslands er henni falið að gæta ytri landamæra og standa vörð um fullveldisrétt Íslands á hafsvæðinu kringum landið. Landhelgisgæslan fer með daglega framkvæmd öryggis- og varnarmála sbr. varnarmálalög nr. 34/2008, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar NATO/LHG og ratsjár- og fjarskiptastöðva.Hjá Landhelgisgæslunni starfar um 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks. Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta - FagmennskaNánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landhelgisgæsla Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Starf í flugrekstrardeild Landhelgisgæslunnar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026