
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Dósent í myndgreiningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
37%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026
Dósent í myndgreiningu
Laust er til umsóknar 37% starf dósents í myndgreiningu á fræðasviði myndgreiningar við Læknadeild Háskóla Íslands.
Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá megin þætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla innan fræðasviðs myndgreiningar, þ.m.t. fræðileg og klínísk kennsla.
Rannsóknir í sinni sérgrein á fræðasviðinu, m.a. með leiðbeiningu framhaldsnema.
Þátttaka í stjórnun deildar, þ.m.t. seta í nefndum og öðrum störfum deildar.
Hæfniskröfur
Doktorspróf á fræðasviðinu eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.
Sérfræðileyfi í myndgreiningu.
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sem kemur m.a. fram í birtingum á ritrýndum vettvangi.
Reynsla af kennslu á háskólastigi, bæði fræðilegri og klínískri.
Reynsla af leiðbeiningu nemenda til æðri háskólagráðu er æskileg.
Stjórnunarreynsla er æskileg.
Reynsla af öflun styrkja.
Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 37%
Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Dósent í myndgreiningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
37%
Starf skráð
27.03.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026