Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í lyfja- og eiturefnafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

28.04.2026

Lektor í lyfja- og eiturefnafræði

Laust er til umsóknar 50% starf lektors í lyfja- og eiturefnafræði á fræðasviði Lyfja- og eiturefnafræði við Læknadeild Háskóla Íslands.

Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla innan fræðasviðs lyfja- og eiturefnafræði, þ.m.t. fræðileg kennsla.

  • Rannsóknir í sérgrein viðkomandi á fræðasviðinu, þ.m.t. leiðbeining framhaldsnema.

  • Þátttaka í stjórnun deildar, þ.m.t. seta í nefndum og öðrum störfum deildar.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf á fræðasviðinu eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.

  • Íslensk lækningaleyfi eða lyfjafræðingaleyfi.

  • Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sem kemur m.a. fram í birtingum á ritrýndum vettvangi.

  • Reynsla af kennslu á háskólastigi, bæði fræðilegri og klínískri.

  • Reynsla af leiðbeiningu til æðri háskólagráðu er æskileg.

  • Stjórnunarreynsla er æskileg.

  • Reynsla af öflun styrkja til rannsóknastarfa er æskileg.

  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá 1. ágúst enda verði störfum nefnda, sem um málið fjalla, þá lokið.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 28.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Magnús Karl Magnússon

lektor

Tölvupóstur: magnuskm@hi.is

Sími: 5254000

Sædís Sævarsdóttir

forseti Læknadeildar

Tölvupóstur: saedis@hi.is

Sími: 5254881

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í lyfja- og eiturefnafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

31.03.2026

Umsóknarfrestur

28.04.2026