
Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri - Þjónusta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.03.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026
Framkvæmdastjóri - Þjónusta
Sjúkratryggingar leita að öflugum og árangursdrifnum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni.
Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og jafnt aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að vernda heilbrigði.
Sjúkratryggingar miðla með samningum og greiðslukerfum miklum meirihluta þess fjármagns sem rennur til íslenskrar heilbrigðisþjónustu, um 300 milljarða kr. á ári. Hagkvæm og góð nýting þessara fjármuna er einn lykilþáttur í að tryggja árangur heilbrigðisþjónustunnar.
Framkvæmdastjóri verður hluti af stjórnendateymi Sjúkratrygginga og á sæti í fimm manna framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir forstjóra og ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun ásamt daglegri stjórnun.
Miklar breytingar standa nú yfir hjá Sjúkratryggingum sem ætlað er að efla starfsemina til að bæta árangur og gæði. Ef þú býrð yfir metnaði til að leiða og móta mikilvæga starfsemi innan íslenska heilbrigðiskerfisins í gagnadrifnu, umbótamiðuðu og lifandi umhverfi hvetjum við þig til að sækja um.
Sjúkratryggingar veita miklum meirihluta landsmanna beina eða óbeina þjónustu á ári hverju. Starfið felur því í sér einstakt tækifæri til að móta mikilvægan þátt í starfsemi Sjúkratrygginga og stuðla að aðgengilegri, skilvirkri og faglegri þjónustu innan heilbrigðiskerfisins.
Um er að ræða lykilstöðu þar sem unnið er að þróun þjónustu, einföldun ferla og stuðningi við stefnumótun og ákvarðanatöku. Markviss þjónusta stofnunarinnar gagnvart notendum heilbrigðisþjónustunnar er einn lykilþáttur í að tryggja árangur hennar.
Á sviðinu starfa um 60 manns. Meðal hlutverka sviðsins er að taka ákvörðun um rétt fólks til þess að nýta tiltekna heilbrigðisþjónustu bæði hér á landi og erlendis. Þá annast sviðið afgreiðslu umsókna um greiðslur vegna sjúklinga- og slysatrygginga. Árlega eru afgreiddar nálægt því ein umsókn á hvern landsmann. Stjórnandi stuðlar að góðri þjónustuupplifun allra þeirra sem þurfa að hafa samskipti við Sjúkratryggingar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stýra þjónustusviði og stuðla að góðri og heildstæðri þjónustuupplifun allra þeirra sem eiga samskipti við Sjúkratryggingar, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fagaðila
Hafa yfirumsjón með verkefnum þjónustumiðstöðvar sem annast framlínuþjónustu Sjúkratrygginga
Stuðla að miðlun skýrra og aðgengilegra upplýsinga um sjúkratryggingar til einstaklinga og fagaðila
Leiða umbætur í þróun þjónustu og þjónustuferla meðal annars með innleiðingu á aukinni sjálfvirkni og gervigreindarlausnum
Tryggja markvissa málsmeðferð og að ákvarðanir samræmist regluverki, lögum og öðrum viðmiðum
Greina og miðla upplýsingum um þjónustu til stuðnings stefnumótunar og ákvarðanatöku
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða er kostur
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti, frumkvæði, umbótamiðaðri hugsun og farsælli stjórnunarreynslu
Umfangsmikil reynsla af uppbyggingu og þróun þjónustu og þjónustuferla
Farsæl reynsla af stefnumótun, breytingastjórnun, stafrænni umbreytingu og uppbyggingu liðsheildar
Framúrskarandi greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og geta til að miðla flóknum upplýsingum á íslensku og ensku í ræðu og á riti
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Þekking og reynsla af heilbrigðisþjónustu er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.
Sótt er um starfið á Starfatorgi ríkisins á www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.sjukra.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri - Þjónusta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.03.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026