
Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri - Fjármál og eftirlit
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.03.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026
Framkvæmdastjóri - Fjármál og eftirlit
Sjúkratryggingar leita að öflugum og árangursdrifnum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni.
Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og jafnt aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að vernda heilbrigði.
Sjúkratryggingar miðla með samningum og greiðslukerfum miklum meirihluta þess fjármagns sem rennur til íslenskrar heilbrigðisþjónustu, um 300 milljarða kr. á ári. Hagkvæm og góð nýting þessara fjármuna er einn lykilþáttur í að tryggja árangur heilbrigðisþjónustunnar.
Framkvæmdastjóri verður hluti af stjórnendateymi Sjúkratrygginga og á sæti í fimm manna framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir forstjóra og ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun ásamt daglegri stjórnun.
Miklar breytingar standa nú yfir hjá Sjúkratryggingum sem ætlað er að efla starfsemina til að bæta árangur og gæði. Ef þú býrð yfir metnaði til að leiða og móta mikilvæga starfsemi innan íslenska heilbrigðiskerfisins í gagnadrifnu, umbótamiðuðu og lifandi umhverfi hvetjum við þig til að sækja um.
Framkvæmdastjóri fjármála og eftirlits annast lykilverkefni á sviði fjármálastjórnunar, innra og ytra eftirlits, áhættustýringar og stuðnings við stefnumótun og ákvarðanatöku. Starfið felur í sér einstakt tækifæri til að móta mikilvægan þátt í starfsemi Sjúkratrygginga og stuðla að markvissri nýtingu opinbers fjár í heilbrigðiskerfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á fjármálum og reikningshaldi sjúkratrygginga með það að markmiði að tryggja góða nýtingu þeirra 300 milljarða sem stofnunin ber ábyrgð á
Áætlanagerð fjárlagaliða sjúkratrygginga og reglubundin uppgjör ásamt frávikagreiningu og eftirfylgni gagnvart frávikum frá áætlun
Greining og miðlun fjármálaupplýsinga til stuðnings stefnumótunar og ákvarðanatöku
Yfirsýn yfir alla greiðsluferla sjúkratrygginga og ráðstafanir til að auka hagkvæmni og öryggi þeirra
Uppbygging og efling áhættustýringar í samstarfi við áhættustjóra
Stefnumótun og þróun innra- og ytra eftirlits stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða er kostur
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti, frumkvæði, umbótamiðaðri hugsun og farsælli stjórnunarreynslu
Umfangsmikil reynsla af fjármálastjórnun í krefjandi umhverfi
Farsæl reynsla af stefnumótun, breytingastjórnun, stafrænni umbreytingu fjármála og uppbyggingu liðsheildar
Framúrskarandi greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og geta til að miðla flóknum upplýsingum á íslensku og ensku í ræðu og á riti
Þekking og reynsla af uppbyggingu og þróun eftirlitskerfa er kostur
Þekking og reynsla af opinberum fjármálum og stjórnsýslu er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.
Sótt er um starfið á Starfatorgi ríkisins á www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.sjukra.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri - Fjármál og eftirlit
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.03.2026
Umsóknarfrestur
15.04.2026