
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Fjörður - Tímabundið starf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-90%
Starf skráð
19.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Fjörður - Tímabundið starf
Heilsugæslan Fjörður leitar að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80-90% tímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á heilsugæslustöðinni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Heilsugæslan Fjörður býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf hjúkrunarfræðings er fjölbreytt og víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum og veitt smáslysaþjónusta. Í bókaðri móttöku er erindum sem eru ekki bráð sinnt, s.s. lyfjagjöfum, saumatöku, sárameðferð og smáaðgerðum.
Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðiskerfið og þjónustuúrræði. Mikil teymisvinna er á milli fagstétta.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun æskileg
Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
Áhugi á forvörnum og heilsueflandi starfi
Færni í fyrirlestrahaldi
Áhugi á réttindum barna
Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-90%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Fjörður - Tímabundið starf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-90%
Starf skráð
19.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026