Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Forsæt­is­ráðu­neyti

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málum Grindavíkur

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.03.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026

Verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málum Grindavíkur

Lög um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ (Grindavíkurnefnd) nr. 40/2024 falla úr gildi 15 dögum eftir almennar sveitarstjórnarkosningar 2026. Lögin heyra undir forsætisráðherra samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta.

Forsætisráðuneytið hyggst ráða verkefnisstjóra sem leiða mun samhæfingu mála í Grindavík. Verkefnið er að stýra samhæfingu mála af ríkisins hálfu er varða Reykjaneselda og uppbyggingu Grindavíkurbæjar. Í starfinu felast mikil samskipti við Grindavíkurbæ og aðra haghafa í Grindavík, önnur sveitarfélög, stofnanir og haghafa á Reykjanesskaga og ráðuneyti, lögreglu, almannavarnir og aðrar stofnanir ríkisins.

Leitað er að drífandi og jákvæðum einstaklingi með víðtæka þekkingu og reynslu úr stjórnsýslu og atvinnulífinu til starfa til loka maí 2028.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stýra samhæfingu mála af ríkisins hálfu er varða Reykjaneselda og uppbyggingu Grindavíkurbæjar

  • Náið samstarf við Grindavíkurbæ og aðra haghafa í Grindavík, önnur sveitarfélög, stofnanir og haghafa á Reykjanesskaga og ráðuneyti, lögreglu, almannavarnir og aðrar stofnanir ríkisins.

  • Formennska í stýrihópi Stjórnarráðsins um málefni Grindavíkur

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi

  • Þekking og reynsla úr stjórnsýslu

  • Þekking og reynsla úr atvinnulífinu

  • Þekking og reynsla af málefnum Grindavíkur er kostur

  • Reynsla af verkefnastjórnun

  • Færni og lipurð í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð hugsun

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Mjög góð enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni.

Starfið er auglýst án staðsetningar.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. júní nk.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigrún Ólafsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: sigrun.olafsdottir@for.is

Þjónustuaðili

Forsæt­is­ráðu­neyti

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málum Grindavíkur

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.03.2026

Umsóknarfrestur

13.04.2026