Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í klínískri sálfræði fullorðinna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.03.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Lektor í klínískri sálfræði fullorðinna

Laust er til umsóknar fullt starf lektors við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Starfið felur í sér kennslu og rannsóknir, auk stjórnunarskyldu.

Viðkomandi þarf að hafa sérþekkingu á klínískri sálfræði fullorðinna. Viðkomandi þarf að beita gagnreyndri nálgun í eigin klínískum störfum og rannsóknum, hafa fræðilega og verklega reynslu af mati og meðferð fullorðinna og geta miðlað þessari þekkingu til nemenda á grunn og framhaldsstigi. Viðkomandi er ætlað að stunda rannsóknir á sínu sérsviði og hafa skýra framtíðarsýn um rannsóknir á sérsviði sínu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með og kennsla í námskeiðum í klínískri sálfræði á grunn- og framhaldsstigi, þá sérstaklega á sviði klínískrar sálfræði fullorðinna.

  • Leiðbeining nemenda í lokaverkefnum á BS-stigi og meistaraverkefnum í klínískri sálfræði.

  • Rannsóknavirkni á fræðasviði umsækjanda.

  • Koma að umsjón með starfsþjálfun nemenda í klínískri sálfræði fullorðinna.

  • Þátttaka í nefndarstörfum deildar og annarri stjórnun.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í sálfræði eða skyldum greinum, ásamt sérþekkingu á klínískri sálfræði fullorðinna.

  • Umsækjendur skulu uppfylla kröfur um starfsleyfi sálfræðings á Íslandi.

  • Rannsóknir á fræðasviði umsækjanda, sem kemur m.a. fram í birtingum á ritrýndum vettvangi.

  • Reynsla af gagnasöfnun í klínískum rannsóknum er kostur.

  • Góð færni í kennslu og miðlun þekkingar.

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

  • Gott vald á íslensku og ensku.

  • Sérfræðileyfi í klínískri sálfræði er æskilegt.

  • Reynsla af handleiðslu nýliða í klínískri sálfræði er kostur.

  • Reynsla af kennslu og leiðbeiningu nema í lokaverkefnum á háskólastigi er kostur.

  • Reynsla af stjórnun er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. september 2026.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir: https://hi.is/haskolinn/um%5Fhaskola%5Fislands

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Heiða María Sigurðardóttir

forseti Sálfræðideildar

Tölvupóstur: heidasi@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í klínískri sálfræði fullorðinna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.03.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026