
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni EUARTHURS - Tilfinningar í Arthúrshefðinni: miðlun, þróun, menningararfleifð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.03.2026
Umsóknarfrestur
29.04.2026
Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni EUARTHURS - Tilfinningar í Arthúrshefðinni: miðlun, þróun, menningararfleifð
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í verkefninu EUARTHURS: European Arthurs, Medieval to Modern sem er innan Marie Sklodowska Curie doktorsnetsins, tilvísun: 101226326 (2026-30). Starfið verður hýst í Íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands.
Starfið er til þriggja ára og er hluti af evrópsku þjálfunarneti sem mun beinast að þvermenningarlegri rannsókn á útbreiðslu Arthúrs-sagnarinnar frá hinum upphaflegu velsku sögnum yfir í alþjóðlegan menningararf. Val á menningar- og málasvæðum verða háð bakgrunnsþekkingu viðkomandi og í samráði við teymið, en geta innihaldið fornnorrænu og önnur norræn tungumál, miðensku, miðháþýsku og ítölsku og tengda minjagripi. Viðkomandi mun fá þjálfun við Þjóðminjasafn Íslands.
Doktorsneminn mun vinna náið með öðrum doktorsnemum í EUARTHURS -verkefninu, sem verða staðsettir í Bangor háskóla í Bretlandi, Scuola Normale Superiore di Pisa á Ítalíu, Clermont Auvergne háskóla í Frakklandi, Amsterdam háskóla í Hollandi og Zürich háskóla í Sviss.
Aðalleiðbeinandi í verkefninu er Sif Ríkharðsdóttir (prófessor við Háskóla Íslands), í doktorsnefndinni verður meðal annars Raluca Radulescu (prófessor við Bangor University), og ráðgjafi í verkefninu verður Sofia Lodén (prófessor við Stockholms universitet).
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknir á tilfinningum í Arthúrs sögninni og miðlun þeirra, þróun og menningararfleifð sem tengjast tilfinninga-kóðum og hegðunarmynstrum í bæði bókmenntum og öðrum menningararfi, þar með talið myndrænu efni eða miðaldagripum.
Rannsóknir á slíkri miðlun og þróun á bókmenntaverkum Chrétien de Troyes og þau mótíf sem tengjast verkum hans yfir ákveðin menningar- og málasvæði, þar með talið útbreiðsla í öðru formi en texta.
Hæfniskröfur
Meistaragráða í almennri bókmenntafræði, miðaldafræðum, eða í tungumáladeildum þeirra tungumála sem um ræðir (norrænar, franskar, þýskar, ítalskar) og felur í sér þekkingu á bókmenntum miðalda. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Bakgrunnur í fornleifafræði, listasögu eða safnalist er æskileg
Kunnátta í fornorrænu máli (forníslensku) æskileg
Tungumálakunnátta í öðrum málum tengdum útbreiðslu verka Chrétien de Troyes er æskileg
Sérstakar kröfur styrkveitanda
Umsækjendur mega ekki hafa dvalið eða stundað vinnu, nám o.s.frv. á Íslandi lengur en 12 mánuði á síðustu 36 mánuðum fyrir ráðningu.
Umsækjendur mega ekki hafa hlotið doktorsgráðu við ráðningu né hafa byrjað í doktorsnámi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Laun doktorsnemans munu byggjast á skilyrðum launakerfis Marie Sklodowska-Curie og eru samkvæmt styrksamningi þar sem kveðið er á um fjárhæð styrks.
Styrkur sem fylgir stöðunni er áætlaður 5.570 evrur á mánuði (living allowance), auk 710 evra á mánuði (mobility allowance) sem greiðist samkvæmt styrksamningi og stendur undir heildarkostnaði stofnunar vegna launa og launatengdra gjalda. Áætluð mánaðarlaun styrkþega eru um 5.000 evrur. Launin verða greidd í íslenskum krónum (ISK) samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Félags háskólakennara og sæta íslenskum sköttum. Laun verða uppreiknuð í samræmi við þróun myntgengis. Þá er einnig möguleiki á fjölskyldustyrk þar sem við á, frekari upplýsingar má finna hér.
Reiknað er með að doktorsneminn hefji störf eigi síðar en 17. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðning er háð því að nemandinn sæki formlega um doktorsnám við deildina og verði samþykktur í það.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Niðurstöður úr TOEFL eða IELTS
Meðmæli frá að því er minnst einum leiðbeinanda/yfirmanni sem hefur beina þekkingu á reynslu og hæfi leiðbeinanda
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Þar sem sá sem starfið hlýtur er hluti af alþjóðlegu EUARTHURS rannsóknarteymi þá mun ráðningarferlið fela í sér sameiginlegt ferli. Þegar sótt er um stöðuna gefa kandídatar þar með leyfi fyrir því að umsóknum þeirra og fylgigögnum verði deilt með verkefnisstjóra og teymisstjóra EUARTHURS í Bangor háskólanum til meðferðar. Öll gögn verða meðhöndluð samkvæmt GDPR viðmiðum og eingöngu notuð við valferli doktorsnema.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sif Ríkharðsdóttir
Tölvupóstur: sifr@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni EUARTHURS - Tilfinningar í Arthúrshefðinni: miðlun, þróun, menningararfleifð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.03.2026
Umsóknarfrestur
29.04.2026