Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni EUARTHURS - Tilfinningar og kyngervi í Tristan hefðinni

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

29.04.2026

Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni EUARTHURS - Tilfinningar og kyngervi í Tristan hefðinni

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í verkefninu EUARTHURS: European Arthurs, Medieval to Modern sem er innan Marie Sklodowska Curie doktorsnetsins ( tilvísun: 101226326 (2026-30). Starfið verður hýst í Íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands.

Starfið er til þriggja ára og er hluti af evrópsku þjálfunarneti sem mun beinast að þvermenningarlegri rannsókn á útbreiðslu Arthúrs-sagnarinnar frá hinum upphaflegu velsku sögnum yfir í alþjóðlegan menningararf.

Doktorsneminn mun vinna náið með öðrum doktorsnemum í EUARTHURS -verkefninu, sem verða staðsettir í Bangor háskóla í Bretlandi, Scuola Normale Superiore di Pisa á Ítalíu, Clermont Auvergne háskóla í Frakklandi, Amsterdam háskóla í Hollandi og Zürich háskóla í Sviss.

Aðalleiðbeinandi í verkefninu er Sif Ríkharðsdóttir (prófessor við Háskóla Íslands), í doktorsnefndinni verður meðal annars Sébastien Douchet (prófessor við Université Clermont Auvergne), og ráðgjafar innan verkefnisins verða Martha Baldon (lektor við University of St Andrews) og Fanny Moghaddassi (prófessor við Université de Strasbourg).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rannsóknir á tengslum og skörun milli kyngerva og tilfinninga-forskrifta í Arthúr-Tristan hefðinni.

  • Rannsóknir á hvernig slík tengsl móta kynvitund og hegðunarmynstur fyrir síðari tíma lesendur, bæði á miðöldum og síðar.

  • Rannsóknir á kynbundnum tilfinningum eins og þær koma fram í Tristan eftir Thomas (anglo-frönsk) og aðlögun og endursköpun slíkra kynbundinna tilfinninga í fornnorrænu og/eða miðensku eða í öðrum tungumálum eins og á við.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í almennri bókmenntafræði, miðaldafræðum, eða í tungumáladeildum þeirra tungumála sem um ræðir (norrænar, franskar, þýskar, ítalskar) og felur í sér þekkingu á bókmenntum miðalda. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Grunnþekking á frönsku og fornnorrænu og/eða miðensku og viðleitni til að bæta þá kunnáttu ef þörf krefur.

  • Önnur tungumálakunnátta sem tengist Tristan hefðinni er æskileg.

Sérstakar kröfur styrkveitanda

  • Umsækjendur mega ekki hafa dvalið eða stundað vinnu, nám o.s.frv. á Íslandi lengur en 12 mánuði á síðustu 36 mánuðum fyrir ráðningu.

  • Umsækjendur mega ekki hafa hlotið doktorsgráðu við ráðningu né hafa byrjað í doktorsnámi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Laun

Laun doktorsnemans munu byggjast á skilyrðum launakerfis Marie Sklodowska-Curie og eru samkvæmt styrksamningi þar sem kveðið er á um fjárhæð styrks.

Styrkur sem fylgir stöðunni er áætlaður 5.570 evrur á mánuði (living allowance), auk 710 evra á mánuði (mobility allowance) sem greiðist samkvæmt styrksamningi og stendur undir heildarkostnaði stofnunar vegna launa og launatengdra gjalda. Áætluð mánaðarlaun styrkþega eru um 5.000 evrur. Launin verða greidd í íslenskum krónum (ISK) samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Félags háskólakennara og sæta íslenskum sköttum. Laun verða uppreiknuð í samræmi við þróun myntgengis. Þá er einnig möguleiki á fjölskyldustyrk þar sem við á, frekari upplýsingar má finna hér.

Reiknað er með að doktorsneminn hefji störf eigi síðar en 17. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðning er háð því að nemandinn sæki formlega um doktorsnám við deildina og verði samþykktur í það.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  1. Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  2. Afrit af prófskírteinum

  3. Niðurstöður úr TOEFL eða IELTS

  4. Meðmæli frá að því er minnst einum leiðbeinanda/yfirmanni sem hefur beina þekkingu á reynslu og hæfi leiðbeinanda

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Þar sem sá sem hlýtur starfið er hluti af alþjóðlegu EUARTHURS rannsóknarteymi þá mun ráðningarferlið fela í sér sameiginlegt ráðningarferli. Þegar sótt er um stöðuna gefa kandídatar þar með leyfi fyrir því að umsóknum þeirra og fylgigögnum verði deilt með verkefnisstjóra og teymisstjóra EUARTHURS í Bangor háskólanum í Bretlandi til meðferðar. Öll gögn verða meðhöndluð samkvæmt GDPR viðmiðum og eingöngu notuð við valferli doktorsnema.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sif Ríkharðsdóttir

Tölvupóstur: sifr@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni EUARTHURS - Tilfinningar og kyngervi í Tristan hefðinni

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

29.04.2026