Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í verkefnavinnu samhliða klínisku starfi á bráðaöldrunarlækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Hjúkrunarfræðingur í verkefnavinnu samhliða klínisku starfi á bráðaöldrunarlækningadeild

Við óskum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á bráðaöldrunarlækningadeild B4 í Fossvogi til þess að sinna ákveðinni verkefnavinnu á deild, samhliða klínísku starfi. Verkefnavinnan er unnin í dagvinnu og svo klíníska starfið í vaktavinnu. Starfshlutfall er samkomulag en helst er horft til þess að ráða einstakling í fullt starf. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Deildin sérhæfir sig í öldrunarlækningurm og er sjúklingahópurinn fjölbreyttur. Því gefast gott tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í virku þverfaglegu samstarfi og unnið er markvisst að faglegri þróun. Starfsandi á deildinni er sérlega góður og spennandi námstækifæri framundan. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun.

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð

  • Virk þátttaka í þróun og umbótum í starfi deildarinnar

  • Fylgjast með nýjungum í hjúkrun

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Verkefnavinna

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna, verkefnavinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sólbjörg Sólversd. Vestergaard

Tölvupóstur: solbjorg@landspitali.is

Sími: 824-1204

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í verkefnavinnu samhliða klínisku starfi á bráðaöldrunarlækningadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026