Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

15.04.2026

Sjúkraliði - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu

Ný bráðamatsdeild er að opna og við leitum að metnaðarfullum sjúkraliðum sem vilja leggja sitt af mörkum við uppbyggingu hennar frá upphafi.

Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á starfsemi, verklag og gæði deildarinnar og taka virkan þátt í þróun þjónustunnar.

Bráðamatsdeildin er viðbót við bráðaþjónustu Landspítala og er skipulögð að breskri fyrirmynd. Bráðamatsdeildin verður 20 rúma sólarhrings deild þar sem þverfaglegt teymi sinnir sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga. Markmið deildarinnar er að tryggja hratt og markvisst mat, greiningu og meðferð sjúklinga með samþættri teymisvinnu og skýrum ferlum.

Starfið er afar fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar. Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í vaktavinnu.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsmiðuð hjúkrunarmeðferð og heildstæð þjónusta við sjúklinga

  • Þátttaka í teymisvinnu í greiningarferli og meðferð

  • Þróun ferla og verkefna á nýrri deild

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við aðrar deildir

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi

  • Góð íslenskukunnátta er æskileg

  • Reynsla af bráðaþjónustu er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Starfið auglýst 20.03.2026. Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 15.04.2026.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Guðbjartsdóttir

Tölvupóstur: hronngudb@landspitali.is

Sími: 762-1759

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

20.03.2026

Umsóknarfrestur

15.04.2026