Þjónustuaðili
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Skólameistari Borgarholtsskóla - Framtíðin kallar!
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.03.2026
Umsóknarfrestur
09.04.2026
Skólameistari Borgarholtsskóla - Framtíðin kallar!
Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir embætti skólameistara Borgarholtsskóla laust til umsóknar.
Við leitum að kraftmiklum og framsæknum leiðtoga sem hefur skýra sýn á þróun framhaldsskólastigsins og getu til að leiða öflugt starf Borgarholtsskóla inn í framtíðina. Borgarholtsskóli er áfangaskóli sem býður nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum auk þess að bjóða fjölbreytt nám til starfsréttinda, starfsbraut og framhaldsskólabraut. Þá býður skólinn uppá íþróttaakademíu fyrir alla nemendur sem stunda skipulagðar keppnisíþróttir. Þessar fjölbreyttu námsleiðir kalla á víðtækt samráð og samstarf við ótal hagaðila. Skólinn starfar eftir annakerfi og þjónar nemendum af höfuðborgarsvæðinu og öllu landinu. Starfsmenn skólans eru liðlega 160 og fjöldi nemenda um 1.270, þar af 1.020 í dagskóla.
Á næstu misserum verður lögð aukin áhersla á að styrkja stjórnsýslu og umgjörð framhaldsskóla, auk gagnadrifinnar ákvarðanatöku. Saman þurfum við að tryggja að skólarnir búi nemendur undir framtíð sem einkennist af hraðri tækniþróun, nýjum hæfnikröfum og síbreytilegu samfélagi. Við leitum því að öflugum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga sem hefur vilja og getu til að starfa með starfsfólki og nemendum að áframhaldandi þróun skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skólameistari er faglegur leiðtogi í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla. Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa starfsheitið kennari og hafa viðbótarmenntun í stjórnun eða reynslu sem veitir sérhæfða hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu.
Framúrskarandi leiðtogahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti og frumkvæði ásamt færni í að skapa liðsheild á vinnustað.
Farsæl reynsla af breytingastjórnun og stefnumótun. Einnig hæfni til að leiða breytingar af jákvæðni og setja nemendur og gæði menntunar í forgang.
Skýr framtíðarsýn þegar kemur að mótun skólastarfs á framhaldsskólastigi.
Góð greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og sterk sýn til nýsköpunar og þróunar í skólastarfi.
Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileiki til að sameina starfsfólk um skýra stefnu á umbrotatímum.
Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu, fjármálum, rekstri og áætlanagerð.
Frekari upplýsingar um starfið
Um launakjör fer samkvæmt 39. gr. a laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Ráðning og kjör:Mennta- og barnammálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Skipað er í embættið frá 1. júlí 2026.
Um ráðningu og launakjör skólameistara fer eftir 2. gr. 12. gr. laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eins og að ofan greinir.
Umsóknir:Með umsókn skal fylgja 1) ferilskrá með upplýsingum um núverandi starf umsækjanda ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, 2) kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur samkvæmt starfsauglýsingu og 3) greinargerð umsækjanda um framtíðarsýn fyrir Borgarholtsskóla út frá faglegum áherslum í skólastarfi.
Athygli er vakin á því að samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er ráðuneytinu skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Skólameistari Borgarholtsskóla - Framtíðin kallar!
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.03.2026
Umsóknarfrestur
09.04.2026